Eldur kviknaði í fjölbýlishúsi í Reykjanesbæ Gissur Sigurðsson skrifar 10. mars 2017 07:29 Karl og kona voru hætt komin þegar eldur kviknaði í íbúð þeirra í litlu fjölbýlishúsi í Reykjanesbæ rétt fyrir miðnætti. vísir/stefán
Karl og kona voru hætt komin þegar eldur kviknaði í íbúð þeirra í litlu fjölbýlishúsi í Reykjanesbæ rétt fyrir miðnætti. Nágrannar tilkynntu um reyk frá íbúðinni og voru þrír lögreglumenn fyrstir á vettvang, sem þegar fóru inn í íbúðina og náðu þar út meðvitundarlítilli konu en svo komu reykkafarar slökkviliðsins og náðu karlmanninum út, sem þá var líka orðinn meðvitundarlítill. Mátti ekki tæpara standa að bjarga þeim, að sögn slökkviliðsins, en mikill reykur var í íbúðinni. Þau voru fyrst flutt á sjúkrahúsið í Keflavík en þaðan svo með hraði á slysadeild Landspítalans, en ekki er nánar vitað um líðan þeirra. Lögreglumönnunum þremur, sem fóru inn í íbúðina var strax gefið súrefni og fóru svo til skoðunar á sjúkrahúsið, en reyndist ekki hafa orðið meint af reyknum. Aðrar íbúðir í húsinu voru rýmdar til öryggis, en greiðlega gekk að slökkva eldinn, sem logaði í eldhúsi íbúðarinnar. Eldsupptök eru ókunn.
Mest lesið Viktor Arman lést af slysförum á Esjunni Innlent „Fólk er í áfalli yfir þessu“ Innlent Ró að færast yfir LA eftir fjögur hundruð handtökur Erlent Fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga án útskýringa Innlent Erlendir ríkisborgarar rúmlega helmingur atvinnulausra Innlent Ekki tíminn fyrir stjórnarandstöðu til að stunda tafarleiki Innlent „Óásættanlegt“ að ofbeldi fái ekki sömu athygli og veiðigjöld Innlent Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Innlent Fjölmiðlafrumvarpið „ein allsherjarhefndarför gegn Morgunblaðinu“ Innlent Ógn loftslagsbreytinga við fæðuöryggi stórlega vanmetin Innlent Fleiri fréttir Ekki tíminn fyrir stjórnarandstöðu til að stunda tafarleiki „Óásættanlegt“ að ofbeldi fái ekki sömu athygli og veiðigjöld Erlendir ríkisborgarar rúmlega helmingur atvinnulausra Viktor Arman lést af slysförum á Esjunni „Fólk er í áfalli yfir þessu“ Fjölmiðlafrumvarpið „ein allsherjarhefndarför gegn Morgunblaðinu“ „Þingið hefur verið svipt aðhaldi sínu“ Ógn loftslagsbreytinga við fæðuöryggi stórlega vanmetin Fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga án útskýringa Hvalurinn kominn út á haf Fastir í flugstöðinni í fjóra daga og Trump-Tesla í Keflavík Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Bein útsending: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Máttu ekki tjalda á Arnarhóli Sterametið mölbrotið í Leifsstöð: Lögðu hald á um 9 lítra af sterum og 44 þúsund töflur Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm Najeb Kolbrún svarar í engu kröfu um að hún skuldi afsökunarbeiðni Vinnuslys við Suðurlandsbraut Fótboltagláp, ráfandi djammarar og nú fljúgandi nefhjól Stendur í stafni fyrir samevrópska nefnd WHO um lýðheilsu Dagur gáttaður á Viðskiptaráði: „Leigufélögin eru ekki andskotinn sjálfur“ Stórauka þjónustu Strætó í lok sumars Bein útsending: Byggjum til framtíðar – með gæði, heilnæmi og sjálfbærni að leiðarljósi Miklar breytingar hjá Play og nefhjól í lausu lofti Háhyrningurinn synti rakleiðis í strand Halla flytur hátíðarávarpið í stað Kristrúnar Olíudreifing sýknuð af tug milljóna króna bótakröfu Costco Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Sjá meira