Gjafmildar Gullrillur Aron Ingi skrifar 9. desember 2017 14:15 Það var gleði í leikskólanum Tanga þegar gjöfin var afhent þar. Mynd/Aron Ingi
Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt. Hér á Ísafirði er mikil skíðamenning og þess vegna kom þessi hugmynd upp. Við ákváðum að hafa fjáröflun, búa til sushi og selja, þar sem enginn sushistaður er á Ísafirði og alla langar í sushi. Þannig að við seldum vel og fyrir ágóðann keyptum við sem sagt gönguskíði sem við gáfum Tanga,“ segir Ásgerður Þorleifsdóttir, ein úr hópi kvenna á Ísafirði sem kalla sig Gullrillurnar. Tangi er annar tveggja leikskóla á Ísafirði, hann er fyrir fimm ára börn, eða þau elstu á leikskólaaldri. „Skíðin verða notuð við útikennslu og í vali barnanna,“ segir Ásgerður. Hún segir Gullrillurnar koma úr ólíkum áttum. „Við kynntumst í kjölfarið á jafnréttisráðstefnu um árið og vorum allar svo uppveðraðar eftir þá ráðstefnu að við ákváðum að gera eitthvað skemmtilegt saman í kjölfarið. Við höfum sett okkur ýmis markmið í gegnum tíðina og brallað margt.“Svo var brunað af stað.Mynd/Úr safni.Ásgerður segir það kost að búa í litlu samfélagi. „Bobbi í Kraftsport sem er með umboðið fyrir þessa skíðategund fékk gott tilboð frá skíðaframleiðandanum úti, svo þegar við fórum að sækja skíðin þá var forstöðumaður skíðasambandsins á Ísafirði í versluninni og hann stökk af stað og gerði skíðabraut í hvelli. Svo kom Gústi ljósmyndari og tók myndir og vídeó þannig að þetta small allt skemmtilega saman.“ Krakkarnir á Tanga voru mjög ánægð og spennt yfir gjöfinni að sögn Ásgerðar, en gjöfin er liður í að stuðla að gönguskíðamenningu á staðnum. „Ísafjörður er algjör gönguskíðaparadís, það er alltaf hægt að komast á gönguskíðasvæðið hér eftir að það fer að snjóa, þar er alltaf opið.“ Verkefninu er ekki hér með lokið enda segir Ásgerður frábært ef hægt væri að gefa leikskólum í nærliggjandi bæjum líka gönguskíði. „Fleiri fyrirtæki vilja taka þátt með okkur og hafa lýst yfir vilja til að kaupa fleiri skíði. Við erum búnar að fá styrk til að gefa leikskólanum á Flateyri næst, svo eru Þingeyri og Suðureyri eftir.“ Ásgerður bendir að lokum á að ef einhver vilji vera með í að styrkja verkefnið sé hægt að hafa samband við Gullrillurnar á síðu þeirra á Facebook.
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira