Lætur gott af sér leiða á sjötíu ára afmælinu Guðný Hrönn skrifar 10. maí 2017 07:00 Sveinn Rúnar Hauksson heldur stórtónleika í kvöld, á afmælisdaginn sinn. vísir/gva „
Ég fékk þessa hugmynd, að halda upp á afmælisdaginn minn með því að gleyma afmælinu mínu hreinlega og halda styrktartónleika fyrir Palestínu. Ég á svo góða að, sem er þetta yndislega listafólk, sem var allt meira en reiðubúið til að leggja þessu verkefni lið,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson um styrktartónleikana sem hann stendur fyrir í dag, á afmælisdegi sínum. Tónleikarnir eru í Háskólabíói klukkan átta og fram koma listamenn á borð við Bubba Morthens, KK, Bjartmar Guðlaugsson, Sigríði Thorlacius, Högna Egilsson, Ellen Kristjáns, Eyþór Gunnarsson, Ragnheiði Gröndal og Guðmund Pétursson. „Mér finnst þetta vera rjóminn af okkar söngvaskáldum. Þetta er mjög spennandi, ekki síst fyrir það að allt andvirði seldra miðum fer óskipt til samtaka á Gasa sem heita AISHA,“ segir Sveinn sem er fyrrverandi formaður Félagsins Ísland-Palestína. Ísland-Palestína hefur stutt AISHA-samtökin frá árinu 2010 en samtökin deila út styrkjum til frumkvöðlaverkefna sem miða að valdeflingu kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi en eru jafnframt höfuð sinna fjölskyldna eftir fráfall eða sjúkdóma eiginmanns. AISHA eru félagasamtök til verndar konum og börnum á Gasa, eins konar sambland af Stígamótum og Kvennaráðgjöfinni ásamt starfsþjálfun. „Þetta er alveg frábært kvennahús sem hefur hjálpað mörgum konum og fjölskyldum sem hafa orðið fyrir ofbeldi.“ Sveinn er mikið afmælisbarn og heldur ávallt veislu á afmælisdaginn. „Já, ég er óskaplega mikið afmælisbarn. Sumum finnst þetta broslegt, því ég býð alltaf mörgum í afmælið mitt á hverju einasta ári, og nú býð ég í eitt Háskólabíó,“ segir hann og hlær. „Ég læt alltaf eins og hvert afmæli gæti verið það síðasta. Þannig að það er alltaf mjög mikið fjör og mikið sungið og spilað.“ Sveinn segir söluna á tónleikana fara ágætlega af stað. „Ég treysti því þó að aðalsalan verði í dag. Þetta verður svaka prógramm og miðinn kostar 3.000 krónur. Þeir sem vilja styrkja frekar geta lagt inn á söfnunarreikning. Eins verður tekið við frjálsum framlögum á staðnum,“ segir Sveinn. „Ég er óskaplega þakklátur þessu fólki öllu, sem kemur þarna fram og hefur verið að undirbúa þetta með mér. Það krefst mikillar undirbúningsvinnu að setja upp svona tónleika og félagarnir Guðfinnur Sveinsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson, ásamt Björk Guðmundsdóttur, sem halda tónleikana með mér, hafa haft mjög mikið að gera og ég hef svona fengið að fylgja með.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Mugison þakkar innilega fyrir sig Tónlist Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Lífið Fleiri fréttir Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“