Jóga á Hornströndum Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 28. mars 2017 14:15 Gróu finnst Hornstrandir magnaðar og töfrum líkar. VÍSIR/ERNIR
Gróa Másdóttir lærði fornleifafræði en hefur kennt jóga í meira en áratug. Hún undirbýr jógaferð á Hornstrandir í sumar. Hornstrandir eru alveg magnaðar og töfrum líkast að vera þar. Náttúran er ósnortin, litirnir og kyrrðin eru engu lík. Meira að segja vatnið er betra þar en annars staðar. Þetta skilja allir sem hafa komið til Hornstranda,“ segir Gróa, sem dvaldi þar í nokkra daga í fyrrasumar. „Ég fór í jógaferð sem starfsmaður á plani. Vinkona mín, Björk Sigurðardóttir, hefur farið oft þangað og þekkir svæðið eins og lófann á sér. Hún vildi sýna mér gönguleiðir og kynna mér þær vel svo ég geti farið sjálf með hópa. Við sigldum frá Bolungarvík lengst inn í Jökulfirði og fórum í land í Lónafirði. Við gengum yfir Snókaheiði og í Hrollaugsvík og þaðan yfir í Látravík og Hornbjargsvita. Þar gistum við í þrjár nætur. Við fórum í eina langa göngu og höfðum einn hvíldardag þar sem við m.a. skoðuðum Látravíkina,“ rifjar Gróa upp en hún lærði leiðsögn og er vön að ferðast um landið með hópa. „Stígshús og Frímannshús í Hornvík. Mér fannst ég vera komin inn í atriði í Börnum náttúrunnar þegar ég var þarna,“ segir Gróa.Paradís í góðu veðriGróa gekk einnig með hópnum yfir Almenningsskarð og í Hornvík og alla leið út á Horn sem strandirnar eru nefndar eftir. „Við vorum frekar heppin með veður. Margir segja að Hornstrandir séu eins og Paradís í góðu veðri, en hreint helvíti í vondu veðri og ég trúi að það sé nokkuð til í því,“ segir hún. „Þetta góða veður hafði þau áhrif að okkur fannst allt svo gott. Vitavörðurinn eldaði fyrir okkur bestu kjötsúpu sem við höfum smakkað. Við fengum bestu fiskibollurnar, búnar til úr nýveiddum þorski, nýbakað brauð og svo tíndu nokkrir úr hópnum hráefni í salat, m.a. skarfakál. Þetta var allt svo dásamlegt."Á leiðinni út á Horn. Hornvík í bakgrunni og Hælavíkurbjarg til vinstri við víkina.Njóta en ekki þjótaTilgangurinn með ferðinni var að njóta en ekki þjóta, lifa í núinu, og upplifa staðinn. „Einnig gerðum við léttar jógaæfingar,“ segir Gróa. Undirbúningur fyrir næstu ferð er í fullum gangi en í sumar fer hún til Hornstranda ásamt Þórlaugu Sveinsdóttur, á vegum Ferðafélags Íslands. Gróa mælir með að þeir sem vilji koma með þjálfi sig vel fyrir ferðina. „Við munum ganga þrjár til fjórar dagleiðir upp um fjöll og firnindi. Þess vegna er gott fyrir fólk að vera í góðu formi. Við ætlum þó ekki að hlaupa þetta, heldur ganga á góðum en stöðugum hraða svo hægt sé að njóta umhverfisins og fá sem mest út úr ferðinni.“Kennir jakkafatajógaSjálf byrjaði Gróa að stunda jóga fyrir fimmtán árum og eftir það varð ekki aftur snúið. „Ég hef verið jógakennari síðan 2005. Ég kenndi í tólf ár hjá World Class en hætti um áramótin og vinn núna fyrir Jakkafatajóga. Við förum inn í fyrirtæki og kennum fólki léttar jógaæfingar. Það er svakalega skemmtilegt. Ég hef kynnst fjölda fyrirtækja sem ég vissi ekki einu sinni að væru til. Jóga er eins og verkfæri í verkfæratöskunni hjá fólki til að láta sér líða vel,“ segir Gróa sem ætlar að kynna Jógaferðina í húsnæði Ferðafélagsins í Mörkinni 6 í kvöld kl.20.
Mest lesið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Fleiri fréttir Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir Sjá meira