Kafa djúpt ofan í Íslendingasamfélagið á Kanarí Guðný Hrönn skrifar 11. maí 2017 13:30 Magnea Björk og Marta Sigríður eru konurnar á bak við heimildarmyndina Kanarí. Vísir/Anton Brink
Magnea Björk Valdimarsdóttir, leikkona og leikstjóri, og Marta Sigríður Pétursdóttir, menningar- og kynjafræðingur, eru þessa stundina að vinna að heimildarmynd um Íslendingasamfélagið á Kanarí. Þær lýsa viðfangsefninu sem „heilum heim“ út af fyrir sig. Við erum búnar að fara tvisvar til Kanarí en þurfum að fara a.m.k. einu sinni aftur. Það tekur tíma að kafa djúpt ofan í viðfangsefnið og mynda tengsl. Við erum búnar að mynda góð tengsl við aðalpersónur myndarinnar, sem eru Klara Baldursdóttir, sem rak Klörubar í 28 ár, og Harry, sem rekur Harry Shop, en hann er Indverji sem hefur aldrei komið til Íslands en talar mjög góða íslensku. Svo er það Marý frá Kirkjubæ og maðurinn hennar sem koma árlega til Kanarí og dvelja í nokkra mánuði, eins konar farfuglar. Þau standa fyrir skemmtilegum söngstundum fyrir Íslendingana þar sem safnast er saman við sundlaugarbakkann á hótelinu Roque Nublo með harmóníkur og gítara,“ segir Magnea um hópinn áhugaverða sem áhorfendur fá að kynnast í myndinni Kanarí.Íslendingasamfélagið á Kanarí er heillandi heimur að sögn Mörtu og Magneu.Það var Marta sem fékk hugmyndina að myndinni og bar þetta undir Magneu sem sló til enda um áhugavert viðfangsefni að ræða. „Íslendingasamfélagið á Kanarí er heill heimur út af fyrir sig. Þangað koma eldri borgarar yfir vetrartímann til þess að forðast kulda og frost. Þar er ódýrt að lifa, fólki líður betur heilsufarslega og upplifir sig síður einangrað.“„Náttúran á Kanarí er líka stórbrotin og þar er margt hægt að finna sér til dundurs fyrir alla aldurshópa. Þetta er líka mjög „kitsch“ eyja, og þar liggur áhugi okkar fagurfræðilega. En persónur myndarinnar eru líka svo frábærlega skemmtilegar þannig að af nógu er að taka.“ Spurð út í hvernig hafi gengið að mynda tengsl við fólk fyrir myndina og fá það til að tjá sig segir Magnea: „Það var lítið mál að fá fólk til þess að opna sig um lífið á Kanarí. Allir hafa tekið okkur opnum örmum og Klara sjálf hefur reynst okkur afar vel og hjálpað okkur með svo ótal margt.“ Magnea og Marta eru komnar vel á veg með gerð myndarinnar en það vantar enn smá upp á. Þær hafa sett af stað söfnun á Karolina Fund þar sem kostnaðarsöm vinnsla er eftir. „Söfnunin klárast á sunnudaginn og ástæðan fyrir því að við efndum til söfnunar er sú að eftirvinnsla heimildarmynda getur verið kostnaðarsöm og tímafrek. Við höfum hingað til borgað allt úr eigin vasa,“ segir Magnea sem bendir áhugasömum á að kynna sér söfnunina nánar á Karolinafund.
Mest lesið Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Mugison þakkar innilega fyrir sig Tónlist Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Lífið Fleiri fréttir Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“