Slakar best á heima Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 27. mars 2017 11:00 “Það er svo gaman að leyfa fólki að smakka eitthvað nýtt og upplifa stemmninguna sem er í kringum indverskan mat.” MYND/ANTON
Yesmine Olsson er mætt til leiks á ný sem einkaþjálfari. Að auki kennir hún fólki að elda indverskan mat og fer í fyrirtæki sem gestakokkur og eldar fyrir starfsfólk. Yesmine er mörgum að góðu kunn fyrir skemmtilega matreiðsluþætti en hún er einnig þekkt sem dansari og einkaþjálfari. Hún hefur gefið út nokkrar matreiðslubækur og er óhrædd við að takast á við nýjar áskoranir. „Ég er nýbyrjuð að vinna aftur sem einkaþjálfari í World Class í Smáralind og í Ögurhvarfi. Yfirleitt vinn ég mikið heima en mér finnst gott að byrja daginn á því að fara í World Class að kenna því hreyfing hefur alltaf verið stór hluti af mínu lífi. Þetta brýtur líka upp daginn hjá mér,“ segir Yesmine en henni líður best þegar hún hefur nóg að gera.Undanfarið hefur Yesmine fetað nýjar slóðir og unnið sem gestakokkur á mismunandi vinnustöðum. „Í síðustu viku var ég t.d. að elda hjá Ölgerðinni. Þetta er mjög skemmtilegt og mikil áskorun. Það eru líka forréttindi að fá að elda með flottum kokkum.Ég hef líka verið önnum kafin við að kenna fólki að elda og ekki haft mikinn tíma í annað. Þess vegna er gott að hafa einkaþjálfunina með, þetta er góð blanda. Það er líka frábært að fá að vinna við það sem maður hefur mest gaman af að gera,“ segir Yesmine en hún heldur reglulega námskeið í indverskri matreiðslu heima hjá sér. Henni finnst skemmtilegast að elda mat sem kemur fólki á óvart. „Það er svo gaman að leyfa fólki að smakka eitthvað nýtt og upplifa stemninguna sem er í kringum indverskan mat."Yesmine heldur matreiðslunámskeið heima hjá sér. MYND/ANTONGaman að borða góðan matInnt eftir því hvers vegna hún hafi svona mikinn áhuga á mat segir Yesmine að það sé sennilega af því að henni finnist matur svo góður. „En ég valdi ekki að vinna með mat, maturinn valdi mig. Þetta byrjaði allt með því að ég skrifaði þrjár matreiðslubækur með áherslu á indverska matargerð. Í raun ætlaði ég aldrei að kenna matreiðslu eða vinna með mat,“ segir Yesmine. Hún leggur áherslu á að fólk skemmti sér vel við eldamennskuna. „Mér finnst gaman að maturinn komi fólki ánægjulega á óvart og vona að námskeiðin verði til þess að fólk haldi áfram að elda indverskt. Þetta er ekki aðeins eldamennska heldur líka stemningin í kringum matinn. Ég kenni grunnatriði í indverskri matargerð sem kemur sér vel hvort sem fólk ætlar að halda indverskt matarpartí eða bara elda góðan, sterkan mat fyrir fjölskylduna,“ segir hún og bætir við að best sé að tryggja sér pláss á námskeiði hjá sér í gegnum tix.is.Hrifin af „street food“Yesmine fylgist vel með nýjum straumum og stefnum í matargerð, ekki síst þegar kemur að hollum réttum. Hún segist lengi hafa verið hrifin af svokölluðu „street food“ hvaðanæva úr heiminum og hún reyni að búa til hollari útfærslu á slíkum mat. Spurð hvort hún eldi dæmigerðan íslenskan mat, eins og ýsu og lambakjöt, skellir Yesmine upp úr. „Getur þú séð mig fyrir þér að elda ýsu? Nei, ég borða ekki ýsu því ég er alin upp í Svíþjóð og þar vandist ég þorski og laxi. Ég er hins vegar svo heppin að vera gift manni úr sveit, sem á fullt af lömbum, hænum og hestum hjá foreldrum sínum í sveitinni, svo að ég á alltaf lambakjöt, egg og fer í nokkrar góðar hestaferðir á hverju ári til að ná góðri jarðtengingu. Ég er mjög hrifin af íslenskum matarhefðum þótt ég borði hvorki slátur né hákarl og maðurinn minn eldar oft kjötbollur og sunnudagslambalærið.“Slakar best á heimaÞegar Yesmine er ekki að vinna finnst henni gaman að fara á skíði, enda alin upp við það í Svíþjóð. „Við fjölskyldan förum oft á hestbak og í veiði og þá höfum við alltaf nesti með okkur. Ég nenni ekki að fara neitt nema fá eitthvað gott að borða líka.“ Annars segist Yesmine vera heimakær og nýtur þess að slaka á heima hjá sér með manni og börnum. „Mér finnst gaman að elda góðan mat í góðra vina hópi og hlusta á skemmtilega tónlist. Ég þarf ekki meira en það.“
Mest lesið „Ég verð að komast til Japan“ Lífið Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Lífið „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Lífið Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Lífið Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Lífið Neyslan var orðinn algjör þrældómur Lífið Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Lífið „Elska hraðann, pressuna og stressið“ Tíska og hönnun Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Sumarlegir réttir að hætti Jönu Emilíana Torrini kemur fram í Hörpu Búa til barnaefni á íslensku á Youtube Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Blóm og plöntur sem þola kuldann Neyslan var orðinn algjör þrældómur Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Bítið í beinni „Ég verð að komast til Japan“ „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Sonurinn skírður Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingurinn flytur úr Hveragerði Bakaríið í beinni Sjá meira