Sunna Tsunami prjónaði fyrir æfingagjöldum Sólveig Gísladóttir skrifar 15. apríl 2017 10:00 Sunna sækir hratt fram á sviði MMA-íþróttarinnar. Alan Suarez
Sunna Tsunami Davíðsdóttir sækir hratt fram á sviði MMA-íþróttarinnar. Hún vakti mikla athygli fyrir frækilega framgöngu í síðasta bardaga sínum sem var hennar annar atvinnubardagi. Framtíðin er björt hjá þessari baráttukonu. Ég hitti Sunnu í glæsilegri aðstöðu Mjölnis í Öskjuhlíð en Mjölnir er eins og annað heimili Sunnu, hér æfir hún og starfar sem þjálfari. Sunna er nýlega komin heim frá Póllandi með dóttur sinni, móður og vinkonum og ég spyr hvort hún hafi verið að slaka á. „Nei, þetta var hörkuverslunarferð,“ segir hún hlæjandi, segist hafa fatað dóttur sína upp og keypt gjafir enda afar ódýrt að lifa og versla í landinu. „Svo reyndi ég að kaupa einhver fín föt á mig, ég er alltaf í Nike-buxum og Mjölnispeysu og lendi alltaf í vandræðum ef ég þarf að fara í fermingu eða annað fínt,“ segir hún glaðlega.Mæðgur og vinkonur Anna Rakel, dóttir Sunnu er á þrettánda ári en Sunna var 19 ára þegar hún átti hana. „Ég vil meina að hún hafi komið á hárréttum tíma enda eigum við góða samleið í dag, erum í bland vinkonur og mæðgur,“ segir Sunna og telur þær að mörgu leyti líkar. „Við erum báðar mjög aktívar og höfum mikinn áhuga á að hreyfa okkur. Anna hefur verið að æfa hér í Mjölni frá 6 ára aldri en er núna að prófa hip hop dans. Svo er hún í handbolta, fótbolta og fleiru. Á meðan hún er hamingjusöm er ég hamingjusöm og ég styð hana í hverju því sem hún ákveður að taka sér fyrir hendur.”Mjölnir er eins og annað heimili Sunnu en nýja aðstaðan í Öskjuhlíð er stórglæsileg.Mynd/EyþórAlltaf haft áhuga á íþróttum Sunna bjó fimm fyrstu æviárin í Svíþjóð. Flutti svo til Stokkseyrar en þar á hún ömmu og afa. Fjölskyldan bjó þó lengst af í Kópavogi. „Íþróttir voru alltaf uppáhaldsfagið mitt í skóla. Ég æfði fótbolta í sjö ár, prófaði sund, handbolta og æfði íshokkí. En ég hef aldrei fundið fyrir jafn mikilli ástríðu fyrir neinu eins og því sem ég er að gera í dag.“ Sunna sat ekki auðum höndum eftir að dóttir hennar fæddist. „Hún var ekki nema sex vikna þegar ég fékk vinnu við barnagæslu á heilsuræktarstöð. Það hentaði vel enda fékk ég klukkutíma í mat sem ég gat nýtt til að fara í ræktina og fékk pössun á meðan.“ Síðar fór hún að vinna um helgar og á kvöldin sem barþjónn, dyravörður og leigubílstjóri en hún leysti af föður sinn sem var leigubílstjóri. „Í þessum störfum lenti ég stundum í aðstæðum þar sem mér var ógnað og upplifði vanmátt í því að kunna ekki að verja mig.“ Vinur Sunnu þjálfaði á þessum tíma muay thai, taílenskt kickbox, og hvatti hana til að koma og æfa. „Ég átti lítinn pening á þessum tíma en hef alltaf prjónað mikið. Ég samdi því við hann að prjóna á hann lopapeysu í staðinn fyrir æfingagjöldin og endaði á að prjóna á kærustu hans og dóttur líka,“ segir Sunna brosandi. Hún féll algerlega fyrir íþróttinni og fékk fljótlega löngun til að fara út í keppni.Ísbaðið hressir þreyttan líkama eftir átök á taílensku æfingabúðunum.Skokkaði inn í Mjölni Ári síðar hafði Sunna tekið sér frí úr muay thai og hugleiddi framhaldið. Gunnar Nelson og MMA höfðu verið nokkuð til umfjöllunar í fjölmiðlum og því var það einn daginn sem hún var úti að hlaupa á Mýrargötunni að hún hoppaði inn í Mjölni til að forvitnast. Hún endaði á að skrá sig í grunnnámskeið í brasilísku jiu-jitsu sem reyndist síðan vera eitt það skemmtilegasta sem hún hefði gert. „Maður kynntist svo mörgum og andinn í Mjölni var svo góður að ég vissi strax að ég væri velkominn.“ Sunna prófaði allt sem í boði var, víkingaþrek, kickbox og síðar ólympískt box. Hún fór fljótlega að keppa. „Ég hef aldrei verið hrædd við að keppa enda lít ég á það sem prófraun og áskorun á sjálfa mig.“Sunna kom heim með belti eftir dvölina í Taílandi.Í taílenskum æfingabúðum Sunna hafði hug á frekara námi og skráði sig á frumgreinabraut í Háskólanum í Reykjavík. „Ég missti pabba minn rétt fyrir skólabyrjun og byrjaði því heldur brösuglega í skólanum en með því að fá mér einkakennara í stærðfræði náði ég að klára tvær annir. Það einkenndi þó allan þennan tíma að Taíland og muay thai voru mér ofarlega í huga enda fjölluðu öll mín verkefni um draumaferð mína til Taílands að æfa þjóðaríþróttina með heimamönnum.“ Það var svo ári eftir lát föður síns, í janúar 2013, að Sunna ákvað að láta drauminn rætast og skipulagði þriggja mánaða æfingaferð í Tiger Muay Thai æfingastöðina í Phuket sem átti eftir að breyta miklu fyrir hana. „Ég bjó í ódýru herbergi, sem var ekki upp á marga fiska, og í þokkabót staðsett í miðjum æfingabúðunum þannig að ég vaknaði á morgnana við höggin í púðunum.“ Sunna vann sig fljótlega upp, byrjaði í byrjendahóp, var sama dag send í miðlungshóp og nokkrum dögum síðar í framhaldshóp. „Þá var ég strax spurð hvort ég vildi keppa og fyrsti muay thai-bardaginn ákveðinn viku eftir að ég kom út.“ Sunna vann bardagann en endaði þó á spítala skömmu síðar, þó af allt öðrum ástæðum. Flugnanetið á herberginu hennar var með stórum götum og moskítóflugurnar höfðu greiðan aðgang inn. Sunna var því öll bitin, fékk sár um allan líkama og sýkingu þannig að hún þurfti að komast undir læknishendur. Þar sem sárin voru svo illa farin var henni meinað að æfa á stöðinni í heilan mánuð. „Ég þurfti því að læra með því að fylgjast með en stalst til að kýla í púða eftir lokun á kvöldin.“ Hún fékk leyfi til æfinga daginn fyrir fyrsta MMA bardaga sinn. „Ég vann þann bardaga í fyrstu lotu með uppáhalds hengingartaki Gunna Nelson,“ segir Sunna sem æfði eftir þetta með keppnishóp stöðvarinnar og fékk við það mikla keppnisreynslu utan stöðvarinnar og kom heim með belti eftir fjögurra mánaða veru úti, en hún fékk að framlengja dvölina um mánuð í stað tímans sem hún missti úr. „Þegar ég kom heim var tekið á móti mér í Mjölni með rauðri keppnispeysu og þar með var ég formlega komin inn í keppnislið Mjölnis. Það var einstök tilfinning.“Sunna upplifði ýmislegt skemmtilegt í Taílandi.Andlega hliðin skiptir öllu Sunna segir mikilvægt að þjálfa hugann ekki síður en líkamann. Það lærði hún eftir fyrsta bardaga sinn eftir heimkomuna. „Það er fyrsti og eini bardaginn sem ég hef tapað en líka sá sem ég lærði mest af. Ég hafði kynnst manni í Taílandi sem hafði ekki góð áhrif á andlegu hliðina hjá mér. Ég sagði skilið við hann stuttu fyrir bardagann og var því ekki vel stemmd og það markaði frammistöðu mína. Þá fann ég hversu mikilvægt er að þjálfa hugann,“ segir Sunna sem stundar hugleiðslu daglega. Vill titilbardaga Leiðin inn í atvinnuheim MMA getur verið erfið og flestir þurfa að heyja nokkra atvinnubardaga áður en þeir komast að hjá bardagasambandi á borð við Invicta. Sunna náði að stytta sér leið með því að fara á Evrópumótið í blönduðum bardagalistum árið 2015 og vinna Evróputitil sem varð til þess að Invicta tók eftir henni og tók hana inn í sambandið. En hvert er framtíðarplanið? „Í lok þessa árs eða byrjun næsta langar mig að fá titilbardaga hjá Invicta og berjast um belti í mínum þyngdarflokki,“ svarar Sunna sem lætur ekkert stöðva sig enda með viðurnefnið Tsunami sem þýðir flóðbylgja.
Mest lesið Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Lífið samstarf Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira