Popparar og Snapchat stjarna í eina sæng Stefán Þór Hjartarson skrifar 11. mars 2017 15:53 Sturla Atlas og Jóhann Kristófer í nýju verkefni saman.
101 boys og Aron Már Ólafsson, eða Aron Mola, munu leiða saman hesta sína í nýjum þáttum sem eru í bígerð um þessar mundir. Þetta hefur varla farið fram hjá neinum af þeim þúsundum sem fylgjast grannt með Aroni á Snapchat á degi hverjum. „Það má búast við ferskri menningarumfjöllun. Í rauninni ætlum við bara að gera það sem við gerum best, fjalla um málefni líðandi stundar á skemmtilegan og afslappaðan hátt. Okkur hefur fundist að það vanti almennilega umfjöllun um menningu ungs fólks og við ætlum okkur að koma menningunni til bjargar þar með þessum þætti,“ segir Jóhann Kristófer eða Joey Christ eins og hann er gjarnan þekktur. Þeir Sigurbjartur Sturla, Logi Pedro og Jóhann Kristófer mynda teymið 101 boys, en ásamt þeim mun samfélagsmiðlamógúllinn Aron Mola stýra þættinum eins og segir hér að ofan. Dagskrárgerð er svo í höndum Unnsteins Manuels, en hann hefur getið sér gott orð við dagskrárgerð á RÚV – svo ljóst er að valinn maður er í hverri stöðu. Strákarnir eru þekktir fyrir að fara sínar eigin leiðir og vildu ekkert gefa upp hvar og hvenær þátturinn verður sýndur en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður þátturinn sýndur annars staðar en í hinum „hefðbundnu“ miðlum – það má búast við að þeir nýti sér mögulega krafta internetsins til að koma þættinum á framfæri, en þar lifir og hrærist sá markhópur sem þeir höfða líklega mest til. Þess má einnig geta að Sigurbjartur Sturla, Jóhann og Aron eru allir menntaðir á sviði leikhússins – Sigurbjartur er leiklistarmenntaður, Jóhann Kristófer er útskrifaður sviðshöfundur og Aron er í leiklistarnámi. Aðspurður hvort um leikna þáttaröð sé að ræða verður Jóhann Kristófer nokkuð dularfullur og svarar: „Það verður bara að koma í ljós.“ Þar höfum við það. Það hefur mikið gengið á upp á síðkastið hjá 101 boys – en Sturla gefur út plötu í næstu viku, þeir luku nýlega við að byggja nýtt stúdíó og þeir sviptu hulunni af samvinnuverkefni sínu og 66°Norður í síðustu viku.
Mest lesið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Fleiri fréttir Dorrit missti aðgang á forrit Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát Sjá meira