Blek sem eyðist á sex mánuðum gæti sparað tíma og peninga Guðný Hrönn skrifar 9. maí 2017 11:30 Þau Unnur Sigrún Þorbjargardóttir, Díana Dögg Sigurðardóttir, Berglind Jónsdóttir, Embla Ósk Þórðardóttir, Ásgerður Steinþórsdóttir og Finn Axel Hansen eiga hugmyndina að yfirstrikunarpennanum sem inniheldur blek sem eyðist eftir sex mánuði. Á myndina vantar Finn og Ásgerði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þessa dagana stendur yfir námskeið í nýsköpun og stofnun fyrirtækja í Háskólanum í Reykjavík og í kúrsinum fékk sex manna hópur þá góðu hugmynd að hanna yfirstrikunarpenna með bleki sem eyðist á um sex mánuðum. „Við leggjum áherslu á umhverfisvernd með betri nýtingu námsbókanna og þessi penni auðveldar námsmönnum að selja bækurnar aftur,“ segir Unnur Sigrún Þorbjargardóttir, ein af meðlimum hópsins sem er að þróa yfirstrikunarpennann. „Það er oft erfitt að skila bókum á skiptibókamarkað ef maður er búinn að glósa í bókina yfir veturinn. Einnig eru margir sem sleppa því að glósa í bækurnar vegna þess að þeir vilja geta selt þær,“ segir Unnur sem stundar nám í lögfræði en með henni í hópnum eru nemendur í heilbrigðisverkfræði, rekstrarverkfræði og viðskiptafræði. „Það hjálpar mikið að við komum öll úr ólíkum deildum skólans sem er mjög gagnlegt þegar að kemur að því að skipta niður verkum og hver og einn nýtir sína þekkingu til hins ýtrasta.“ Margir hafa sýnt áhugaÞað getur verið erfitt að selja bækur aftur ef búið er að nota yfirstrikunarpenna í þær.NORDICPHOTOS/GETTY„Við erum búin að tala við efnafræðing og vitum að þetta er hægt og það er mikill áhugi fyrir pennanum, bæði hjá nemendum og fyrirtækjum sem við höfum haft samband við,“ útskýrir Unnur sem segir hugmyndina hafa fengið afar jákvæð viðbrögð. Unnur er viss um að ef hópnum tækist að koma pennanum á markað myndi hann slá í gegn.„Já, hann myndi spara nemendum bæði peninga og vinnu. Einnig myndi hann stuðla að betri nýtingu og verndun umhverfisins.“ Spurð út í næstu skref segir Unnur: „Draumur okkar er að láta þetta verða að veruleika en núna einbeitum við okkur að því að klára námskeiðið og skoðum svo möguleikana á að láta þetta verða að möguleika eftir námskeiðið.“
Mest lesið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Bíó og sjónvarp „Ég var mjög skrítinn krakki“ Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Fleiri fréttir Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Sjá meira