Hefði saknað þeirrar ítölsku Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 29. maí 2017 15:30 Nanna Rögnvaldardóttir er ritstjóri hjá Forlaginu og þekktur matreiðslubókahöfundur. Hér er hún við eldavélina góðu í nýja eldhúsinu. Nanna safnar nú steypujárnspottum- og pönnum sem hún segir einstakt að elda í. MYND/ERNIR
Matreiðslubókahöfundurinn og ritstjórinn Nanna Rögnvaldardóttir hefur eldað á gasi í 20 ár. Hún gat ekki hugsað sér að skilja ítölsku gaseldavélina sína eftir þegar hún flutti í fyrra. „Þessi ítalska eldavél er dýrasti hlutur sem ég hef nokkurn tímann keypt, en ég tek fram að ég hef aldrei keypt mér bíl,“ segir Nanna og skellir upp úr. Eldavélin var keypt í Kokku árið 2007 og kostar um 600 til 700 þúsund krónur í dag. „Það er töluvert fyrir eldavél til heimilisnota en ég vildi almennilega græju og var tilbúin að borga fyrir það. Maður átti víst fyrir öllu árið 2007,“ segir Nanna kankvís og vísar til margfrægs góðærisárs. „Móðir mín var með gaseldavél í hálft annað ár um 1960. Síðan kom rafmagnið og mamma sá alltaf eftir gasinu sem henni þótti miklu þægilegra að elda á. Sjálf hef ég eldað á gasi í tuttugu ár. Mér þykir heillandi að elda við lifandi eld frekar en rafmagn, svo ég tali nú ekki um á steypujárnspönnum. Ætli það tengist ekki frummanninum í okkur; það er allavega eitthvað frumstætt og fallegt við matargerð yfir opnum eldi.“ Ítalska gaseldavélin hennar Nönnu er 90 sentimetra breið og með tveimur rafmagnsofnum. „Þetta er traust og flott eldhúsgræja. Brennararnir eru kraftmiklir og auðvelt að elda við mjög háan hita en líka mjög lágan hita. Eldavélin er einnig afkastamikið atvinnutæki því ég er búin að elda á henni fyrir einar tólf matreiðslubækur, fyrir svo utan allt annað,“ segir Nanna, alltaf jafn sæl með gripinn. Reyndar svo sæl að hún flutti eldavélina með sér á milli húsa við íbúðaskipti í fyrrasumar. „Þá var ég á tímabili með rafmagnshelluborð og fannst ég lítið geta gert, enda orðin mjög góðu vön. Ég ætlaði upphaflega að selja eldavélina með gömlu íbúðinni en svo runnu á mig tvær grímur. Ég fann í hjarta mínu að ég ætti eftir að sjá mikið eftir þeirri ítölsku og sakna hennar við matseldina. Sömuleiðis heyrði ég á mögulegum kaupendum að sumir voru spenntir fyrir þessari fínu eldavél á meðan aðrir voru smeykir við hana. Á endanum sagði ég fasteignasalanum að ég væri til í að slá af íbúðaverðinu og taka eldavélina með mér og úr varð að kaupendurnir fengu helluborðið og ofninn úr nýju íbúðinni,“ segir Nanna og gæti ekki verið sáttari með ráðstöfunina. „Mér hafði vaxið í augum að koma eldavélinni fyrir í nýja eldhúsinu og hélt jafnvel að ég þyrfti að skipta um eldhúsinnréttingu en svo rann upp fyrir mér að ég gat gert breytingar á mun einfaldari hátt til að koma henni fyrir og hér tekur hún sig vel út.“ Nanna hefur um árabil verið ástríðufullur safnari spennandi tækja og tóla í eldhúsverkin. „Ég er mjög ginnkeypt fyrir skemmtilegum eldhúsáhöldum en reyndi að grynnka aðeins á dótinu við flutningana í fyrra. Mér gengur hins vegar illa að standast freistingarnar og kom til dæmis heim með átta kílóa steypujárnspott í handfarangri þegar ég skrapp til útlanda á sextugsafmælinu mínu í mars. Ég er líka nýbúin að kaupa nýtt grill því það sem ég átti áður ónýttist í roki. Mér verður því ekki skotaskuld að elda við fjölbreyttar aðstæður og ræð vel við matseldina þótt rafmagnið fari af á ögurstundu eða í tólf manna matarboði, eins og gerst hefur. Maður finnur alltaf leiðir til að bjarga sér.“
Mest lesið Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira