Abu Bakr al-Baghdadi 99 prósent á lífi Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 18. júlí 2017 07:00 Baghdadi sást síðast á opinberum vettvangi í Mósúl árið 2014. Vísir/AFP
Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtogi ISIS, er ekki látinn. Þetta fullyrti Lahur Talabany, yfirmaður í hersveitum Kúrda í Írak, í samtali við Reuters. Á dögunum greindu samtökin Syrian Observatory for Human Rights frá því að Baghdadi væri að öllum líkindum fallinn frá og var það ekki í fyrsta skipti sem slíkar fréttir berast. Samtökin hafa hins vegar getið sér góðan orðstír fyrir nákvæmni. „Baghdadi er klárlega á lífi. Hann er ekki dáinn. Við höfum fengið upplýsingar um að hann sé á lífi. Við erum 99 prósent viss um það,“ sagði Talabany og bætti því við að hann væri einkar fær í að fela sig enda með reynslu af því frá því að hann var í al-Kaída hryðjuverkasamtökunum. Talabany sagði að afar erfitt yrði að hafa uppi á leiðtoga hins svokallaða íslamska ríkis. „Landsvæðið sem þeir stýra enn er afar torfært. Það er enn ekki komið að endalokum íslamska ríkisins. Jafnvel þótt þeir hafi tapað nær allri Mósúl og séu við það að tapa Rakka í þokkabót.“ Að sögn Kúrdans væri ISIS nú að laga sig að breyttum aðstæðum. Það myndi taka þrjú til fjögur ár að útrýma samtökunum algjörlega þar sem þau myndu nú flýja upp í fjöll og út í eyðimerkur. Þaðan myndu samtökin gera skyndiárásir og meðal annars beita sjálfsmorðssprengjum í auknum mæli.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira