Fundu 27 linsur í auga einnar konu Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 18. júlí 2017 07:48 Augnlæknar á Bretlandi ráku upp stór augu þegar þeir fundu 27 linsur í auga konu í nóvember síðastliðnum. Vísir/Getty
Læknar á Solihull sjúkrahúsinu í Bretlandi fundu, sér til mikillar furðu, 27 augnlinsur í auga konu í nóvember síðastliðnum. Konan, sem er 67 ára gömul, var á leið í aðgerð vegna skýs á auga þegar læknar rákust á linsurnar. Konan hafði talið að þurrkur í auga og elli væri valdurinn af óþægindum í auganu. Rupal Morjaria, sérfræðinemi í augnlækningum við Solihull, lýsti atvikinu í grein í læknaritinu BMJ. Þar segir að konan hafi ekki kvartað undan neinum sjóntruflunum fyrir aðgerðina. Deyfingarlæknir fann linsurnar þegar hann undirbjó deyfingu á konunni. „Hann setti spegil inn í augað til að halda því opnu á meðan hann deyfði og hann tók eftir bláum klumpi undir efra augnloknu,“ sagði Morjaria í samtali við CNN. Klumpurinn umræddi reyndist vera 17 augnlinsur. Hinar tíu fundust við frekari skoðun á auganu. „Við vorum öll agndofa,“ sagði Morjaria. „Við höfum aldrei séð neitt þessu líkt.“Mál fyrir heimsmetabækurnar Thomas L. Steinemenn, talsmaður Samtaka augnlækna í Bandaríkjunum, segist hafa fengið til sín sjúklinga með eina linsu fasta í auga, en aldrei 27. „Þetta virðist eiga heima í heimsmetabókunum, að því er ég best veit,“ segir Steinemann. Konan hafði notast við mánaðarlinsur í 35 ár en ekki er vitað hvenær linsurnar fóru að safnast saman í auga hennar. Í samtali við lækna sagðist hún stundum ekki hafa fundið linsur þegar hún ætlaði að fjarlægja þær. Hún hafi hins vegar gert ráð fyrir að hafa misst þær einhvers staðar, ekki að þær væru að safnast saman undir augnlokinu. Morjaria segir að hún og meðhöfundar hennar hafi viljað vekja athygli á mögulegum afleiðingum þess að notast við augnlinsur án þess að fara reglulega til augnlæknis. Ef fólk viti að það hafi ekki tekið úr sér linsu og fái sérkennilega tilfinningu í augað sé best að leita læknisaðstoðar. Steinemann segir að einkenni fastrar linsu séu stingur eða kláði í auga. Hann segir að mjúkar linsur, líkt og þær mánaðarlinsur sem konan notaði, geti virkað eins og einskonar svampur til að draga í sig bakteríur sem eykur líkur á sýkingu í auga. Aðgerð konunnar var frestað vegna sýkingarhættu, segir Morjaria. Hún hafi komið aftur tveimur vikum seinna, liðið mun betur og farið í aðgerðina.
Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Sjá meira