Sveinki færir grænlenskum börnum jólapakka frá Íslandi Hersir Aron Ólafsson skrifar 9. desember 2017 20:00
Íslenski jólasveinninn Stekkjastaur heldur til Kulusuk eftir helgi þar sem hann hyggst færa grænlenskum börnum jólagjafir. Gjafanna er aflað af félagsmönnum í skákfélaginu Hróknum, en þeir voru í óða önn að pakka inn í dag. Undanfarin fimmtán ár hafa félagar í Hróknum glatt grænlensk börn með gjöfum um jólin. Verkefnið er unnið í samstarfi við ýmis fyrirtæki sem leggja í púkk auk þess sem flogið er frítt með gjafirnar og sveinka. Gjöfunum var pakkað inn í vöruskemmu við Geirsgötu nú síðdegis, en þar var fólk önnum kafið við að tryggja að hægt væri að koma glaðningum út fyrir jólin. Margir hafa lagt söfnuninni lið, en í öllum pökkunum má meðal annars finna handprjónaðar flíkur sem hópur kvenna hefur unnið að því að prjóna í Gerðubergi í Breiðholti í hverri viku. Um 60 konur hafa tekið þátt í verkefninu, en Henný Níelssen, einn forsvarsmanna verkefnisins, segir hlýja vettlinga koma sér vel á Grænlandi. Þannig sé að jafnaði afar kalt, en mörg þeirra barna sem gjafirnar þiggja búi við talsverða fátækt. Þau gleðjist því mjög þegar komið er með pakkana.Frétt Stöðvar 2 um málið og viðtal við Henný Níelssen má sjá í spilaranum að ofan.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Innlent „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Innlent Fleiri fréttir Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Sjá meira