Skilyrði fyrir hlaupavinina að vera með góðan húmor Guðný Hrönn skrifar 19. júlí 2017 08:30 Tobba og Kalli eru stödd á Ítalíu en þau láta það ekki stoppa hlaupaundirbúninginn.
Þorbjörg Marinósdóttir, Karl Sigurðsson og ljósmyndarinn Íris Ann skipa hlaupahópinn Vinir Stefáns Karls, en hópurinn ætlar að hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu í næsta mánuði og safna fyrir vin sinn, leikarann Stefán Karl, sem greindist með gallgangakrabbamein haustið 2016. „Við erum þrjú í hópnum núna en það eru fleiri að bætast við, Sigvaldi Kaldalóns útvarpsmaður og Þóra Sigurðardóttir fjölmiðlakona ætla til dæmis að vera með,“ segir Tobba. „Og við tökum glöð á móti fleiri hlaupurum. Við höfum bara eina reglu: það þurfa allir að hafa mikinn húmor og hlýtt hjarta, og þá má fólk hlaupa með.“ Stefán er svo lífsglaður og dásamlegur maður, hann segir alltaf: „Ég er ekki með krabbamein í húmornum,“ og við ætlum að hlaupa með þetta viðhorf að leiðarljósi. Við ætlum bara að hafa þetta skemmtilegt. Allir geta verið með, jafnvel þó að fólk kunni ekki að hlaupa. Ef það kann að hafa gaman þá er það nóg því það fara bara allir á sínum hraða.“ Upphæðin sem hlaupahópurinn nær að safna mun skiptast jafnt milli Stefáns Karls og Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Tobba segir veikindi Stefáns setja stórt fjárhagslegt strik í reikninginn hjá honum og fjölskyldu hans.„Fólk áttar sig kannski ekki endilega á því en þegar fólk veikist svona eins og Stefán þá fara gjarnan allar tekjur heimilisins í veikindin. Og það er ekki gott að vera með áhyggjur af peningum ofan á allt hitt.“ Stefán Karl á afmæli 10. júlí og Tobba segir hugmyndina á bak við hlaupið hafa kviknað þegar afmælisdagurinn hans nálgaðist. „Þá fórum við að hugsa hvað við gætum gefið honum. Svo ákvað ég að í staðinn fyrir að hlussa í afmælisköku þá myndi ég bara hlussa mér áfram í Reykjavíkurmaraþoninu og búa til peninga í leiðinni. Honum finnst það miklu fyndnara.“ Setja engin tímametTobba og Kalli eru stödd á Ítalíu þessa stundina og eru byrjuð að æfa sig fyrir hlaupið. „Já, við höfum verið að hlaupa og hjóla hérna úti. Ég hef oft verið í betra hlaupaformi, en það skiptir engu máli. Markmiðið er bara að klára þetta og gera eitthvað gott í leiðinni. Við erum ekkert að fara að setja nein tímamet, en við höfum alveg hlaupið oft áður og Kalli er fínasti hlaupari,“ útskýrir Tobba. Spurð út í hvort hún sé búin að segja Stefáni Karli frá hlaupagjörningunum segir Tobba: „Já, hann veit af þessu og Steinunn Ólína, konan hans líka. Steinunn, sem er góð vinkona mín, var ofboðslega þakklát og hrærð. Og áður en ég fór til Ítalíu þá kvaddi hún mig með þessum orðum: „Mundu að pasta er djöfullinn,“ þannig að hún vill greinilega ekki að ég hlaupi í spik hérna úti. Hún vill að ég hlaupi áfram fyrir Stefán,“ segir Tobba og hlær. Að lokum hvetur Tobba áhugasama til að leggja verkefninu lið með því að styrkja hópinn í gegnum www.hlaupastyrkur.is. „Við erum bara þakklát fyrir allt sem kemur. Og ég veit að Stefán og fjölskylda kunna að meta stuðninginn.“ „Maður vill hjálpa í þessum erfiðum aðstæðum en það er kannski takmarkað sem maður getur gert. Þannig að við þurfum mikið á því að halda að fólk styrki okkur og líka að fólk hlaupi með okkur. Ég elska þau sjúklega mikið,“ segir Tobba klökk. „Og það skipir mestu máli að þau finni fyrir stuðningi.“
Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Fleiri fréttir Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Sjá meira