Kaupir bara það sem honum líkar Stefán Þór Hjartarson skrifar 23. júní 2017 10:30 Daði Lár er ekki eini áhugamaðurinn um skó á heimilinu en bæði pabbi hans og bróðir deila áhugamálinu. Vísir/Ernir „
Frá því að ég var kominn í þá skóstærð sem ég nota í dag sem var í kringum 2010 hef ég verið að safna skóm. Það má segja að ég hafi fengið áhugann á skóm í vöggugjöf en pabbi sá alltaf til þess að ég og bræður mínir værum í nettum Nike-skóm þegar við vorum litlir, enda er hann sjálfur einlægur Nike-aðdáandi. Sjálfur fór ég að hugsa mikið um skó snemma á unglingsárunum en það voru þá aðallega skór til að nota í körfubolta,“ segir Daði Lár Jónsson, mikill áhugamaður um skó – þá aðallega strigaskó eða „sneakers“ eins og þeir eru oft kallaðir. Daði Lár fær áhugann eins og hann segir úr körfunni, en hann er leikmaður Keflavíkur auk þess sem faðir hans er Jón Kr. Gíslason, ein af goðsögnum Keflavíkur í körfubolta. Það leikur enginn vafi á hvaða merki er í uppáhaldi hjá Daða en uppeldið hefur greinilega skilað sér – hann á einungis skó frá Nike í safninu. Daði segir að hann hafi byrjað safnið sitt á Nike Air Force 1, en um er að ræða þekktustu og vinsælustu skóna frá Nike sem virðast alltaf vera að skjóta upp kollinum sem tískugripur – þó að margir myndu segja þá sígilda. Daði segir að kvikmyndin Notorious, ævisaga rapparans Notorious B.I.G. eða Biggie Smalls, hafi spilað inn í að hann keypti sér fyrstu Air Force skóna. „Í dag er ég aðallega að safna Lebrons, en hann hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér, en skólína hans hefur þó dalað síðustu ár og ég er farinn að færa mig meira í Jordans og Kyries,“ segir Daði og á þá við skólínur NBA-leikmannanna Lebron James, Michael Jordan og Kyrie Irving. Uppáhaldspör Daða - Jordan 3 Fire Red, Lebron 9 Summit Lake Hornets og Lebron 8 EntourageVísir/ErnirHvað áttu orðið mörg pör og eru einhver sérstök pör í uppáhaldi? „Þetta eru rétt undir 80 pörum í dag og svo eru um 50 pör hérna í viðbót sem Dagur Kár bróðir minn á. Mínir uppáhaldsskór hafa alltaf verið Jordan 3 og af þeim fimm litum sem ég á þá eru það Fire red sem eru mér kærastir. Ég hlakka mikið til á næsta ári en þá koma Jordan 3 Black Cement út aftur og þið getið bókað að þeir bætast við safnið.“Hefur þú einhvern tímann eytt óvenju miklu í eitt par? „Ég er alfarið á móti því að yfirborga fyrir skó og þessi endursölumarkaður sem er t.d. í kringum Yeezy-skó er ekki fyrir mig. Ég kaupi það sem mér líkar en ekki það sem er vinsælast. Ég hef alltaf verið duglegur að finna góð kaup á eBay og í outlet-búðum í Bandaríkjunum. Ég hef það nokkurn veginn fyrir reglu að eyða aldrei yfir 250 dollurum í eitt par.“ Daði segist ganga í öllum skónum sínum reglulega. Hann vill njóta þess að nota þá og hefur engan áhuga á að selja þá aftur – en í sneaker-geiranum tíðkast það gjarnan að menn geyma skóna í kössunum eins og safngripi frekar en skófatnað. Hann segist þó eiga eitt par af Nike Flight 1 sem er einungis til sýnis en faðir hans spilaði í skónum „einhvern tímann fyrir aldamótin“. Þeir sem vilja fylgjast nánar með Daða og þróun safnsins hans geta fylgt honum á instagram @dadilarjonsson en hann er duglegur að henda inn myndum af dýrgripunum sínum.
Tíska og hönnun Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Tíska og hönnun Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Fleiri fréttir Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Buxur með opið klof vöktu athygli Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Minnist föður síns með verðmætu verkefni Aðalpæjur landsins komu saman Dreifði ættjarðarástinni til London og Parísar Gellur elska hönnun Tíundi bekkur slys í heild sinni Fimmhundruð manns í örlagaríku teiti Gusugleði í Vesturbæjarlaug Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum Þessi sigruðu Met Gala Met Gala-bölvunin alræmda Hittu sjálfan Jacquemus í New York Gjörningar og gleði á HönnunarMars Sjá meira