Eins og að sturta niður demöntum Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 14. júní 2017 09:45 Frímann í Legóbúðinni hefur kubbað í tæp þrjátíu ár. Hann vonast til að sem flestir komi til að býtta í von um að fá kallana sem þá vantar. MYND/ANTON BRINK
Legóbúðin býður í býttidag á mínífígúrum í dag, fimmtudag. Atvinnunördinn Frímann Valdimarsson ætlar að mæta með fágæta kalla úr einkasafninu, eins og eldgamla geimfara. „Það eru allir að tala um Mr. Gold. Hann er sjaldgæfastur og verðmætastur,“ upplýsir Frímann um eftirsóttustu mínífígúru (e. minifigures) Lego sem framleidd var árið 2013 í takmörkuðu upplagi í tíundu seríu. "Þá voru 5.000 stykki af Herra Gulli sett í staka poka og dreift um heimsbyggðina og nú, fjórum árum síðar, er helmingurinn enn ófundinn.” Á uppboðsvefnum eBay er Mr. Gold metinn á 2.000 Bandaríkjadali, eða tæpar 200 þúsund krónur. „Á lista yfir hundrað verðmætustu mínífígúrur Lego eru sögupersónur Star Wars ráðandi. Meðal annars eru til tvö eintök af Boba Fett úr 14 karata gulli og kosta tvær milljónir stykkið. Kaupendur í dótabúðum detta ekki í lukkupottinn með slíkar gersemar, því þær eru sérframleiddar og seldar, en Mr. Gold má enn hnjóta um í leikfangabúðum heimsins,“ segir Frímann sem sjálfur er mikill Lego-nörd og keypti sér nýlega Ghost Busters-sett með tíu fígúrum á 40 þúsund krónur. „Þar með eignaðist ég langþráða sögupersónu Bills Murray úr Ghost Busters, sem er uppáhaldið mitt.“ Persónur úr Star Wars eru áberandi í 100 efstu sætunum um verðmætustu mínífígúrur Lego.MYND/ANTON BRINKDýrmætur fjársjóðurFrímann segir marga í leit að Svarthöfða úr Stjörnustríði og hægt sé að hafa dágott upp úr krafsinu eigi maður verðmætar fígúrur eða heilu settin í fórum sínum. „Til dæmis eru stakar fígúrur úr Millennium Falcon-setti Star Wars mjög verðmætar og eigi maður á settið með öllu eykst verðgildið enn meir. Ég segi iðulega við foreldra barna sem hingað koma, og helst í áheyrn barnanna, að kaupa ekki meira Lego fyrr en börnin kunni að passa upp á settin sín og kallana sem orðið geta fágætir. Söfnunarleið nördsins er að gæta þess að hafa allt úr sama setti í einum kassa svo það blandist ekki öðru. Með því átta krakkar sig á því, og oft í fyrsta sinn, að þau eiga verðmæti í leikfangasafninu og gott að hafa á bak við eyrað að söfnunargildi Lego eykst með tímanum og að alvöru stöff leynist inni á milli.“ Sjálfur gaf Frímann litla bróður sínum fokdýrt sett með verðmætri fígúru. „Næst þegar ég kom í heimsókn var búið að taka hendurnar af kallinum og setja nýjar í staðinn. Þá barði ég í borðið og sagði að þetta gengi bara ekki! Þetta væri eins og að sturta niður demöntum!“ segir hann og brosir, en öllu gamni fylgir alvara. „Lego-kallar og sett eru ekki endalaust til. Hver sería er að meðaltali í sölu í eitt til tvö ár. Þannig dettur Force Awakens-línan úr Star Wars út í desember næstkomandi, og um leið og framleiðslu er hætt en einhver á hana til í óopnuðum pakkningum getur hún rokið upp í verði.“Heillandi og frægir kallarÍ dag býður Legóbúðin í Smáralind öllum að koma og býtta á mínífígúrum. Býttað verður á vegum búðarinnar frá hádegi til kvölds en á milli klukkan 17 og 19 býðst öllum að koma með kallana sína og býtta við aðra gesti Legóbúðarinnar. „Við elskum þessa litlu Lego-kalla og fyrir þá sem vantar einn kall í sett eða eru að leita að ákveðnum kalli er tilvalið að mæta á svona býttidag. Við höfum þegar togað í nokkra spotta og búin að verða okkur úti um alveg helling af eldri gerðum af Minifigures-pokum,“ upplýsir Frímann spenntur. Hvað eftirsóknarverðast sé á býttidegi sem þessum segir Frímann fara eftir áhugasviði hvers og eins. „Í Batman-seríunni, sem hætti 1. maí, voru nokkrar fígúrur mjög vinsælar, eins og Jókerinn, Harley Quinn og Glam Rock-útgáfan af Batman, en í þeirri seríu voru alls tuttugu fígúrur úr Batman Lego-bíómyndinni. Þessar vinsælustu voru þó ekki í settunum sjálfum heldur eingöngu seldar sér og því ekki hægt að fá með öðrum hætti.“Legónördar á áttræðisaldriMínífígúrur Lego komu fyrst á markað 1978. Í tölfræði Lego segir að til ársins 2010 hafi verið framleiddar 3,7 milljarðar fígúra og eru persónur fígúrukallanna yfir 3.600 talsins. „Fyrstu mínífígúrurnar voru allar eins, með rauðan búk og handalausar, og réði ímyndunaraflið hver væri hvaða persóna í leik. Árið 1980 fengu kallarnir loks hendur og hafa litið eins út síðan. Mínífígúrur í stökum pokum eru sjóðheitar til söfnunar og reynt að safna köllum úr hverri seríu sem komnar eru yfir tuttugu alls,“ segir Frímann innan um stútfulla kassa af mínífígúrugóssi sem bíða býttis. „Mann vantar alltaf kalla! Brátt verð ég þrítugur og þótt ég hafi kubbað stöðugt í 26 ár og sé kominn með ágætis safn vantar mig enn nokkra góða. Vonandi kemur hellingur af liði til að býtta!“ Í Lego-búðinni vinna eingöngu Lego-nördar enda finnst Frímanni lykilatriði að viðskiptavinir komi ekki að tómum kofunum með eitt eða neitt sem viðkemur Lego. „Þeir sem koma fagnandi á býttidag eru allt frá krökkum yfir í áttræða Lego-nörda. Þetta er afar vinsælt hjá krökkum en líka fullorðnu fólki og eru nokkrir öldungar sem koma hingað reglulega til að spjalla um Lego í þrjá, fjóra tíma, sem okkur þykir auðvitað mjög skemmtilegt.“Mínifígúrudagur Legóbúðarinnar í Smáralind er í dag, fimmtudag, frá klukkan 12 til 21.
Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira