Hænsnakofi hugmynd sem færði félögum sigur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 2. júní 2017 10:15 Við afhendinguna. Ólafur Harðarson stjórnmálafræðingur var fundarstjóri, Fríða Vala Ásbjörnsdóttir, stofnandi og verkefnisstjóri Landsbyggðarvina, Alma Ágústsdóttir, fulltrúi Grunnskólans á Hólmavík sem hlaut 2. verðlaun fyrir hugmynd að lýsingu og viðgerð á göngustígum í bænum, Egill og Ólafur, 1. verðlaunahafar, Katrín Jakobsdóttir þingmaður, sem afhenti verðlaunin ásamt Jóni Gunnarssyni ráðherra, og Helgi Árnason, skólastjóri og formaður Landsbyggðarvina.
Ég hlakka til að koma á Hofsós næst og fá egg úr hænsnabúinu við skólann,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, glaðlega þegar hún afhenti nýlega 1. verðlaun félagsins Landsbyggðarvina. Tveir herramenn, Ólafur Ísar Jóhannesson og Egill Rúnar Halldórsson, fráfarandi nemendur Grunnskólans austan Vatna á Hofsósi, tóku við verðlaununum fyrir hænsnakofa sem þeir hafa komið upp við skólann. Kofinn reyndist besta hugmynd að lausnum að betri framtíð í heimabyggð sem félaginu barst þetta árið frá grunnskólanemendum. Hugmyndin snerist ekki bara um að byggja kofann úr endurunnu efni, heldur að gefa nemendum skólans kost á að komast í tæri við hænur og vinna í leiðinni gegn matarsóun því hænurnar fá afganga sem falla til í heimilisfræði, mötuneyti og kaffistofu og skólinn fær eggin í staðinn. Eins og dómnefnd Landsbyggðarvina orðaði það í rökstuðningi sínum: „Sjálfbærni alla leið.“Svona var kofinn þegar þeir félagar fundu hann.Afhendingin fór fram í Norræna húsinu og eftir hana voru Egill Rúnar og Ólafur Ísar króaðir af í spjall. Þeir héldu á umslagi með verðlaunafé, hundrað þúsund krónum, og voru sammála um að peningurinn kæmi sér vel því nauðsynlegt væri að kaupa fóðurbæti handa hænunum, til að eggin skiluðu sér. „Svo væri gott að búa til smá gerði svo hænurnar geti verið úti við,“ sagði Egill. „Já, þetta er tvískiptur kofi núna sem við smíðuðum úr öðrum gömlum kofa og afgangs smíðaefni. Öðrum megin leikur ferskt loft um hænurnar og þær eru í birtu en það væri gott fyrir þær að komast aðeins út í gras og gott veður,“ sagði Ólafur. Egill útskýrði að í hinum helmingnum væri aðstaða til varps. Hænurnar séu með hitalampa og geti verið í kofanum allan ársins hring.Svona er hann eftir breytinguna.Að sumrinu sjá strákarnir fyrir sér að kofinn verði færður nær tjaldstæðinu, aftan við skólann, enda sé hann byggður á vörubretti þannig að auðvelt sé að færa hann með dráttarvél. Þá verði það gestir tjaldstæðisins sem sinni hænunum en afar og ömmur á Hofsósi til vara. Ólafur og Egill eiga heima í Fljótunum, um hálftíma akstur frá Hofsósi, Ólafur á Brúnastöðum og Egill á Molastöðum, sauðfjárbú eru á báðum bæjum og þeir eru því vanir skepnum. Á Brúnastöðum er meira að segja dýragarður á sumrin og þar eru margar tegundir af hænum, allt frá risastórum niður í litlar kornhænur. Báðir voru piltarnir að ljúka 10. bekk og ætla í Menntaskólann á Akureyri með haustinu.
Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Emily in Paris-stjarna látin Lífið Fleiri fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Sjá meira