Unnu keppni með einfaldri markatöng Gunnþóra Gunnardóttir skrifar 4. júní 2017 09:30 Indriði heldur á golóttu lambi og Óskar bregður tönginni á vinstra eyra þess en engin plata var í henni í þetta sinn svo ekki varð úr mark. Mynd/Páll Friðriksson/Feykir
Óskar Aron Stefánsson og Indriði Ægir Þórarinsson eru 13 ára Skagfirðingar og tilheyra báðir Lýtingsstaðahreppi. Óskar á heima í Álfheimum og Indriði á Stórhól. Þeir fengu 1. verðlaun í nýsköpunarkeppni grunnskólanna fyrir að finna upp einfalda markatöng til að marka lömb með. Í þeirri töng er hægt að skipta um plötur eftir því hvaða fjármark á að setja á lambið. Þeir útskýra það nánar. Óskar: „Fjármörk eru mörg og mismunandi og heita öll sínum nöfnum, til dæmis hvatt og biti. Sum mörk eru samsett úr nokkrum mörkum. Bóndinn þarf því að beita nokkrum hnífs- eða tangarbrögðum við að marka hvert lamb. Einfalda markatöngin á að einfalda málið þannig að aðeins eitt tangarbragð þurfi til að marka hvort eyra. Bóndinn gæti þá valið hvort hann mundi vilja eiga tvær tangir fyrir hvort eyra.“ Indriði: „Annars mun verða hægt að skipta um markaplöturnar því á flestum bæjum eru notuð fleiri en eitt mark.“ Útbjugguð þið gripina eða á hvaða formi skiluðuð þið af ykkur hugmyndunum? Óskar: „Við gerðum líkan af tönginni og plakat til að skila í keppnina.“ Hvað fengu þið svo í verðlaun? Indriði: „Verðlaunin voru Lenovo Yoga fartölva og tveir dagar í Fab Lab smiðju í Nýsköpunarmiðstöð Íslands í Vestmannaeyjum, ferð með Herjólfi, kennsla, efni, matur og gisting.“ Hafið þið tekið þátt í svipuðum keppnum áður? Óskar: „Já, ég hef tekið þátt í nýsköpunarkeppninni þrisvar áður.“ Indriði: „Og ég tvisvar.“ Spáið þið mikið í að búa til eitthvað nýtt? Óskar: „Já, markmið okkar er að halda áfram að finna upp eitthvað nýtt.“ Indriði: „Við viljum gera öðrum lífið auðveldara.“ Þykir ykkur gaman að eiga heima í sveit? Óskar: „Já, mér finnst mjög gaman að eiga heima á sveitabæ.“ Indriði: „Við ætlum örugglega að halda áfram að búa í sveit í framtíðinni.“ Eruð þið komnir með einhver framtíðaráform? Indriði: „Við ætlum örugglega að mennta okkur eitthvað.“ Óskar: „En vitum ekki ennþá hvert hugurinn stefnir.“
Mest lesið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið Einar fékk meira hár en Baldur Lífið „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Lífið „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Lífið Glatkistunni lokað Menning Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Lífið „Ég er sáttur við það dagsverk“ Menning Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið Fleiri fréttir Einar fékk meira hár en Baldur „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Sjá meira