Salaskóli breyttist í bæ Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 8. júní 2017 08:30 Handhafar viðurkenninganna, ásamt Margréti Friðriksdóttur formanni menntaráðs Kópavogs. Hrafnhildur er önnur frá vinstri í fremri röð og Þorvaldur er við hlið hennar, lengst til vinstri.
Hjá bæjarstjóranum fór fram atkvæðagreiðsla um tiltekið mál í bænum. Kópurinn, viðurkenningar menntaráðs Kópavogs fyrir framúrskarandi skólastarf í grunnskólum Kópavogs, var veittur nýlega við hátíðlega athöfn í Salnum. Alls bárust 20 tilnefningar til menntaráðs og voru veittar sex viðurkenningar fyrir verkefni sem þóttu fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skólastarfi. Meðal þeirra var Ég og bærinn minn, þróunarverkefni sem kennararnir Þorvaldur Hermannsson og Hrafnhildur Georgsdóttir leiddu. „Þetta var risaverkefni sem við höfum verið að vinna að í allan vetur,“ segir Hrafnhildur og segir hugmyndina að því hafa kviknað í Finnlandsferð sem nokkrir kennarar og skólastjóri Salaskóla fóru í. „Þar fengum við nasaþef af því sem við framkvæmdum,“ útskýrir hún. „Við Þorvaldur tókum verkefnið að okkur og bjuggum til námsefni sem var kennt tvisvar í viku í fjórar vikur í 6. og 7. bekkjum, í þeim eru samtals 130 börn. Það var fræðsla um allt mögulegt sem þarf í einu samfélagi, um lýðræði, skatta, opinbera þjónustu og þar fram eftir götunum.Í bakaríinu gerðu krakkarnir kókoskúlur og vöfflur og fengu líka brauð gefins frá Reyni bakara.Börnin fengu 30 blaðsíðna vinnuhefti sem þau unnu í með sínum bekkjarkennurum. Síðan bjuggum við til bæ í salnum okkar, settum upp bása með 16 fyrirtækjum og stofnunum, bakarí, læknastofur, fréttastofu, líkamsræktarstöð, hárgreiðslustofu, skóla, trésmíðaverkstæði, bílastöð, löggustöð, ljósmyndastúdíó, svo einhver séu nefnd. Til að hafa allt sem eðlilegast fengum við lánað og gefið ýmislegt hjá hinum ýmsu fyrirtækjum og stofnunum í Kópavogi.“ Hrafnhildur segir 33 störf hafa verið í boði og öll börnin hafi sótt um fimm störf. Hvert og eitt fékk að taka þátt í bænum einn dag. Þau fengu ítarlega starfslýsingar sem leiddi þau í gegnum daginn og öll fengu peninga til umráða enda þurftu þau að borga skatta og eiga fyrir hinu og þessu. Öll þurftu líka að kjósa um ákveðið málefni í bænum og þannig kynntust þau lýðræðinu. Við renndum þessu prógrammi í gegn á fjórum dögum og endurröðuðum öllu í lok hvers dags, þannig að tilbúið væri fyrir næsta hóp.“Auðvitað var skóli í bænum. Nemendur úr 2. bekk voru fengnir að láni og „kennararnir“ útbjuggu verkefni fyrir þá.Verkefnin sem hlutu viðurkenningu eru Samstarf Sinfóníuhljómsveitar Íslands og skólahljómsveitar Kópavogs, sem Össur Geirsson stýrir. Ég og bærinn minn í Salaskóla, þróunarverkefni sem leitt var af Hrafnhildi Georgsdóttur og Þorvaldi Hermannssyni. Rafrænar ferilmöppur í list- og verkgreinum, Árni Jónsson, Eygló Jósephsdóttir, Ingibjörg Ólafía Ólafsdóttir og Helga Björg Barðadóttir í Álfhólsskóla Teymiskennsla í 1.-5.bekk Lindaskóla: Nanna Hlín Skúladóttir, Elsa Sif Guðmundsdóttir, Kristgerður Garðarsdóttir, Paloma Ruiz Martinez og Sigrún Dóra Jónsdóttir, Lára Sif Jónsdóttir, Sigurrós Óskarsdóttir, Auðbjörg Njálsdóttir, Ásta Björk Agnarsdóttir, Ásdís Björk Jónsdóttir og Guðrún Friðbjörg Eyjólfsdóttir. Lestrarnámskeið í samstarfi nemenda, foreldra og sérkennara undir stjórn Kristínar Arnardóttur, sérkennara í Kópavogsskóla. Appmótun: Tæknilæsi – myndlæsi – menningarlæsi. Ingibjörg Hannesdóttir Smáraskóla.
Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira