Endingargóð förðun með fókus á bleikar varir Guðný Hrönn skrifar 22. maí 2017 20:00 Förðunarfræðingurinn Hrafnhildur Björk Runólfsdóttir farðaði Sonju Anaís Ríkharðsdóttur Assier með vörum frá Urban Decay. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Sumarið er gengið í garð og af því tilefni kennir förðunarfræðingurinn Hrafnhildur Björk Runólfsdóttir lesendum réttu handtökin þegar kemur að því að kalla fram sumarlega og létta förðun. Hér er lögð áhersla á ljómandi húð og varir í sumarlegum og björtum lit.1. Undirbúningur húðarinnar Hrafnhildur lagið mikla áherslu á undirbúning húðarinnar. „Gott er að undirbúa húðina áður en hafist er handa, þrífa hana og setja á sig gott rakakrem. Ég byrjaði á setja Quick Fix Hydra Charged andlitsúða á Sonju en hann inniheldur meðal annars kókosvatn sem gefur húðinni góðan raka og ljóma. Þar á eftir notaði ég Urban Defense-farðagrunn sem jafnar áferð húðarinnar og inniheldur sólarvörn,“ segir Hrafnhildur.2. Húðin fullkomnuð Því næst litaleiðrétti Hrafnhildur húðina. „Ég notaði leiðréttingu í bleiku og grænu. Sá bleiki fór undir augnsvæðið til þess að fela bláma og birta. En græni fór á rauðleitu svæðin til þess að draga úr roða. Þar á eftir notaði ég Naked Skin farðann sem inniheldur grænt te og E-vítamín. Ég notaði hyljarann á þau svæði sem máttu við meiri þekju,“ segir Hrafnhildur sem mælir með að setja punktinn yfir i-ið með léttu púðri. „Til þess að draga fram kinnbeinin notaði ég pallettu í litnum Streak, hún inniheldur sólarpúður, „highlighter“ og kinnalit. Til þess að fá fallegan ljóma yfir vangann notaði ég alla þrjá litina í palettunni saman í stað þess að nota þá sitt í hvoru lagi. Til þess að fá enn meiri ljóma í tilefni sumarsins þá notaði ég Afterglow „highlighter“-púður í litnum Sin sem er fallegur gylltur litur.“Hrafnhildur aðeins einn augnskugga í þessa léttu augnförðun.FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR3. Augabrúnir og augu „Sonja er með þéttar augabrúnir svo ég þurfti ekki að gera mikið við þær. Ég fyllti aðeins inn í þær með fíngerðum augabrúnablýanti og greiddi svo í gegnum þær með augabrúnageli.“ Fyrir valinu varð svo létt og einföld förðun. Þó að um einfalda augnförðun sé að ræða mælir Hrafnhildur með að nota augnskuggagrunn sem tryggir að förðunin endist vel og lengi. „Eftir að hafa sett augnskuggagrunn á augnlokið notaði ég aðeins einn augnskugga, litinn Faith úr Ultimate Basics palettunni. Honum dreifði ég yfir augnlokið og einnig meðfram neðri augnháralínu til að ramma inn augun. Því næst notaði ég „highlighterinn“ Luminous, bæði undir augabrúnir og í innri augnkrók.“4. Sumarlegar varir „Gott er að ramma inn varirnar með varablýanti til að auðvelda ásetningu og svo að varaliturinn blæði síður. Ég notaði varablýantinn Streak og einn af nýju fljótandi varalitunum okkar í litnum Tryst. Liturinn Tryst er bæði sumarlegur og vatnsheldur, sem hentar vel fyrir sundferðirnar í sumar.“5. Punkturinn yfir i-ið „Að lokum spreyjaði ég All nighter Setting spray-andlitsúðanum yfir andlitið á Sonju til að hámarka endinguna,“ útskýrir Hrafnhildur.
Mest lesið Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Lífið Ein veirusýking sneri öllu lífinu á hvolf Lífið Nicholas Brendon er látinn Lífið Fór lögblind í gegnum doktorsnám Lífið Landsliðsmaður í ADHD sem lifir á húmornum Lífið Fréttatía vikunnar: Vextir og verðlaun á verðlaun ofan Lífið Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Lífið Misheppnaður mömmuleikur Gagnrýni Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Lífið samstarf Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Menning Fleiri fréttir Ein veirusýking sneri öllu lífinu á hvolf Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Nicholas Brendon er látinn Fór lögblind í gegnum doktorsnám Landsliðsmaður í ADHD sem lifir á húmornum Fréttatía vikunnar: Vextir og verðlaun á verðlaun ofan Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Alaska 1867 er nýliði ársins Ástrós og Adam eiga von á öðru Gjörbreytti íbúðinni með einni tilfærslu Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Magnús Hlynur í Efstaleitið Afroman fagnaði sigri gegn sjö lögregluþjónum Þegar kvikmyndagerðar- og tónlistarfólk kemur saman gerast ótrúlegir hlutir Helstu einkenni breytingaskeiðsins og mögulegar lausnir Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Hvað veistu um… Akureyri? Gæðastund með gæðablóðum Ástrós getur elskað fleiri en einn í einu: „Hvernig hefurðu tíma í þetta?“ Hollywood-stjarna blastar íslenskri hljómsveit „Mikilvægast að vera með hreina samvisku“ „Þetta var alltaf stóri draumurinn“ Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu „Jú, ég sá einhverja fræga“ Villi Neto skellti hráu eggi með skurninni upp í sig Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Sjá meira