Macron segist allt eins eiga von á hörðum orðaskiptum á fundi sínum með Pútín Atli Ísleifsson skrifar 29. maí 2017 13:30 Vladimír Pútín og Emmanuel Macron. Vísir/AFP
Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Vladimír Pútín Rússlandsforseti sitja nú á fundi í Versölum, skammt frá París. Samskipti ríkjanna hafa verið stirð á síðustu árum, meðal annars vegna stríðsátakanna í Úkraínu og Sýrlandi, en fyrir fundinn sagðist Macron eiga von á að til harðra orðaskipta gæti komið. Kosningateymi Macron sakaði nýverið fulltrúa rússneskra yfirvalda um að beina tölvuárásum gegn framboði Macron og í aðdraganda frönsku forsetakosninganna fundaði Pútín með Marine Le Pen, forseta Þjóðfylkingarinnar, í Moskvu þar sem hann óskaði henni góðs gengis. Macron hafði hins vegar betur gegn Le Pen í síðasti umferð forsetakosninganna. Á fundi G7-ríkjanna á Sikiley um helgina sagði Macron það vera nauðsynlegt að ræða við rússnesk stjórnvöld þar sem ekki væri hægt að leysa sumar alþjóðlegar deilur án þess að eiga samtal við Rússa. Áður hafa frönsk stjórnvöld gagnrýnt Rússlandsstjórn fyrir stuðning þeirra við aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Þá hafa Frakkar og önnur Evrópusambandsríki beitt Rússa viðskiptaþvingunum í kjölfar innlimunar Rússa á Krímskaga. Frakkar og Rússar hafa sömuleiðis stutt við bakið á ólíkum hópum í Sýrlandsstríðinu síðustu ár. Hafa Frakkar stutt hópa súnníaraba og Kúrda, en Rússar verið ötulir stuðningsmenn Bashar al-Assad Sýrlandsforseta.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira