Vandræðalega heimakær Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 10. maí 2017 10:00 Ragga er heimakær en henni hefur tekist að koma á góðu jafnvægi á milli einkalífs og vinnu. MYND/Salar Bagan
Ragga kemur fram ásamt fríðum hópi tónlistarmanna á tónleikunum í kvöld. Auk hennar og Guðmundar Péturssonar koma fram Bubbi Morthens, Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson, Ellen Kristjáns, KK og Bjartmar Guðlaugsson. „AISHA samtökin hafa það að markmiði að efla konur í Palestínu sem hafa t.d. misst eiginmenn sína eða lent í erfiðum aðstæðum og áföllum,“ segir Ragga sem ætlar að syngja og leika á píanó með manninn sinn, Guðmund Pétursson gítarleikara, sér við hlið. Hún segist oft taka að sér að syngja á tónleikum til styrktar ákveðnum málefnum, líkt og aðrir tónlistarmenn á Íslandi. „Ég er til í að koma fram fyrir öll góð málefni, enda eru svo margir í samfélaginu og í heiminum sem þarfnast hjálpar. Ég bara veit og hef upplifað hvað svona safnanir geta skipt miklu máli, jafnvel breytt öllu fyrir fólk sem er að glíma við erfiðleika – í það minnsta gerir þetta aðstæður fólks ögn bærilegri og svo held ég líka að fólki þyki vænt um stuðninginn, kærleikann og samhuginn sem fylgir styrktartónleikum.“Heppin með verkefniÞegar Ragga er spurð hvað hafi á daga hennar drifið síðustu mánuði kemur í ljós að hún hefur haft í nógu að snúast. Hún er nýkomin heim úr tveggja vikna tónleikaferðalagi um Austurríki, sem hún segir að hafi verið dásamlegt. „Í lok síðasta árs gaf ég út nýtt lag sem heitir Yoanna, hélt stóra tónleika í Háskólabíói, fór í tónleikaferð um Þýskaland og tók jólavertíðina með trompi, ásamt vinum mínum í söngtríóinu Eitthvað fallegt. Í febrúar kom ég fram sem sólisti með stórsveit norðurþýska útvarpsins (NDR Bigband), í mars fórum við í ótrúlega skemmtilegt tónleikaferðalag um Eistland og síðan söng ég fyrir Maríu Magdalenu í Jesus Christ Superstar með frábærum hópi tónlistarmanna. Þetta er svona það sem stendur upp úr og ég man eftir, enda er ég svo heppin að hafa mjög fjölbreytt verkefni.“Ný plata í vinnslu Fram undan eru næg verkefni sem Ragga hlakkar til að takast á við. „Það er hellingur í gangi, sem betur fer. Ég er á leiðinni til London til þess að vinna með upptökustjóra fyrir nýja plötu sem kemur út í byrjun næsta árs. Síðan er ég að semja tónlist við barnaleikrit ásamt Bergrúnu Írisi. Ég mun koma fram á Secret Solstice og með NDR Bigband í júní. Við ætlum að skella okkur á þjóðlagahátíð á Siglufirði, halda tónleika í Norræna húsinu, spila á Djasshátíð Reykjavíkur og á spennandi tónlistarhátíð í Oldenburg í Þýskalandi þar sem þemað er farfuglar og hvernig þeir tengja lönd og menningu saman. Síðan skellur haustið á og þá hrúgast vonandi inn fleiri spennandi verkefni, en ef ekki mun ég einbeita mér alfarið að plötugerð og barnaleikriti.“Kennir jóga vikulegaFyrir utan að koma fram og syngja fyrir fólk ætlar Ragga að slaka eins mikið á og hún getur með fjölskyldunni og nýjum fjölskyldumeðlimi sem er Vitamix-blandari. „Ég er að sigla inn í nýtt tímabil eftir að ég fjárfesti í græjunni og á mjög erfitt með að slíta mig frá eldhúsinu. Ég er á fullu að gera alls konar tilraunir til eflingar heilsu og almennrar vellíðunar. Ég er svo heimakær að það er nánast vandræðalegt, en vinnan mín er samt þannig að mér tekst oftast ágætlega að finna jafnvægi milli hins inn- og úthverfa lífs. Ég kenni svo jóga einu sinni í viku í Yoga Shala í Skeifunni þannig að ég verð að vera dugleg í jóga og svo stefni ég að því að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu. Við gleymdum að plana eiginlegt sumarfrí eins og oftast en við reynum að stela rólegum dögum sem koma inn á milli til að njóta sumarsins og vera dugleg að hitta vini og fjölskyldu.“ Þegar Ragga er spurð hvaða lag henni þyki vænst um af þeim lögum sem hún hefur sungið hugsar hún sig vel um. „Þetta er erfið spurning. Kannski lagið Litla barn sem kom út á plötunni Svefnljóð.“ Hún er hins vegar ekki lengi að svara því hvaða lag er í uppáhaldi hjá henni þessa dagana. „Það heitir ‘Till April is Dead’ og er flutt af æðislegri tónlistarkonu frá Bretlandi sem heitir Lisa Knapp. Ég fæ hreinlega ekki nóg af henni.“ Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 20.
Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Fleiri fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Sjá meira