Bjarni Ben kom Vesalingi til bjargar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. maí 2017 11:30 Bjarni Ben kom óperusöngvaranum Þór Breiðfjörð til bjargar í gær. Vísir/Eyþór
Forsætisráðherra reyndist svo sannarlega betri en enginn þegar bíll óperusöngvarans Þórs Breiðfjörð dó í umferðarösinni í gær. Þór lýsir atburðarásinni á Facebook þar sem hann segir daginn hafa virst ætla að vera nokkuð afslappaðan þar til örlögin gripu í taumana. Faðir Þórs kom til aðstoðar og reyndu þeir feðgar að bjarga „litlu gráu VW-dollunni“ úr bílaröðinni þegar óvæntur maður kom til aðstoðar. Er óhætt að segja að lýsing Þórs, sem sló í gegn í Vesalingunum í Þjóðleikhúsinu um árið, sé einkar skemmtileg.Að neðan má sjá atriði úr Vesalingunum. „ Út úr jeppa stekkur vörpulegur maður með góða greiðslu. Var hann nokkuð sportlega klæddur niður, einhvers konar langar „hotpants“ og íþróttaskór úr trimmdeildinni. Sportmennið tekur sér „ýtingarstöðu“ við bílinn með föður mínum og með undirritaðan við stýrið komum við bílnum úr teppunni. Kappinn vindur sér orðalaust með bros á vör upp í jeppann og veifar í kveðjuskyni.“ Þór lýsir því svo að þeir feðgar hafi nú verið komnir með bílinn í skjól og því hafið að festa dráttarkaðal við bílinn. „ Mínúturnar líða og ég velti fyrir mér hvort faðir minn ætli ekki að segja neitt. Eftir tvær mínútur get ég ekki orða bundist: „Nú verður hann Gunnlaugur Ragnarsson, vinur minn, óalandi og óferjandi,“ segi ég. Þá glottir gamli. Ég vil þakka Bjarna Ben forsætisráðherra fyrir aðstoðina og Gunnlaugur, vertu þægur.“
Mest lesið Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Lífið samstarf Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira