Sjóðheitar sælkerakrásir frá Gana Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 12. maí 2017 15:45 Ganabúinn Patience A. Karlsson er eigandi verslunarinnar Afro Zone í Hólagarði í Efra-Breiðholti. Hún varð ástfangin af Íslendingi sem var við túnfiskveiðar í Gana fyrir fjórtán árum. Patience flytur inn brakandi ferska ávexti og grænmeti, ásamt freistandi og framandi hráefni í eldamennskuna frá Afríku. MYND/ERNIR
Efra-Breiðholt er heillandi suðupottur skemmtilegrar heimshornamenningar og þar er leynist afríska sælkerabúðin AfroZone. Eigandinn er Ganabúinn Patience A. Karlsson sem hér reiðir fram vinsælasta helgarmatinn í Gana fyrir landsmenn sem vilja spreyta sig á einhverju nýju í eldhúsinu. Ganabúar í Vestur-Afríku eru sólgnir í gómsætt Red red. Nafnið, á íslensku Rautt rautt, er dregið af lit réttarins sem er rauð kássa með steiktum mjölbanönum sem meðlæti. Patience er hrifin af bragðsterkum mat og notar því ferska tómata, hvítlauk, engiferrót, lauka, tómatpuré og nautakjöt í sína útgáfu en það gerir lit og bragð enn ríkulegra. Í Red red eru oftast notaðar augnbaunir (e. black-eyed peas) eða aðrar kúabaunir sem finna má í AfroZone. Útkoman er sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana.Red red (fyrir 4)Stórir vel þroskaðir mjölbananar 500 g augnbaunir Salt Stór laukur Ferskur hvítlaukur Fersk engiferrót Kjöt eða fiskur að eigin vali 1 dós (70g) Derica tómatpuré 200 ml rauð olía eða önnur grænmetisolía Chilipipar að vild Magi fisk- eða kjötkraftur Gari (búið til úr rótarhnýði cassava-jurtarinnar)ATH! Mjölbananar, augnbaunir og aðrar kúabaunir, Derica tómatpuré, rauð grænmetisolía og gari fást í AfroZone, Lóuhólum 2-6 í Efra Breiðholti.Hreinsið baunir og látið í pott með vatni sem nær minnst þumlung yfir. Sjóðið í klukkustund eða þar til mjúkar. Skerið lauk og annað hrámeti. Blandið hluta af því við kjötið ásamt salti og krafti. Látið sjóða í 2 mínútur. Hitið næst olíu á pönnu og snöggsteikið soðið kjötið í um 2 mínútur. Fjarlægið nú kjötið, kælið olíuna aðeins og steikið upp úr henni lauk, hvítlauk og engifer í um hálfa mínútu. Setjið tómatpuré út á pönnuna og hrærið þar til verður rautt, bætið þá við ferskum tómötum. Bætið við krafti og kjöti og eldið á miðlungshita til að byrja með en síðan er látið malla á lágum hita í 5-10 mínútur. Bætið að síðustu soðnum baunum saman við, saltið og látið malla á lágum hita á meðan bananar eru undirbúnir.Steiktir mjölbananarFjarlægið bananahýðið, snyrtið bananana og skerið í litla bita. Saltið lítillega. Hellið olíu á pönnu, um hálfan þumlung á dýpt, og steikið bananabitana á miðlungshita. Hrærið og veltið til svo bitarnir brúnist vel. Takið þá af pönnunni og þerrið á eldhúspappír eða grind. Berið fram með kássunni. Skreytið með gari líkt og gert er með parmesanost á pitsu eða notið sem meðlæti sem vætt er í vatni. ATH! Sleppa má olíu, skera bananana smærra og sjóða í saltvatni í 5-10 mínútur eða rista í ofni í 5-10 mínútur á 200°C. Einnig er Red red gómsætt sem grænmetisréttur með því að sleppa kjöti eða fiski.Red red er vinsælasti aðalréttur Ganabúa og sannkallað gómsæti sem hittir í mark á kósíkvöldi.Karamellur úr niðursoðinni mjólkGanamenn eru lítt gefnir fyrir sælgæti og líta á það sem verðlaun fyrir krakka. Í Gana er flestur matur heimaunninn og á það líka við um sætindi. Patience telur það vera vegna þess að ódýrara er að kaupa dós af niðursoðinni mjólk til að gera heimagerðar karamellur en að kaupa þær innfluttar. Karamellurnar innihaldi minni sykur en bragðist jafnvel enn betur. „Ungir krakkar taka gjarnan upp á því að kaupa niðursoðna mjólk fyrir vasapeninginn sinn og búa til karamellur sem þeir selja svo skólasystkinum sínum undir borðið. En þótt krakkar séu sannarlega sólgnir í karamellurnar er pabbi minn vitlaus í þær líka. Þær eru dásamlegt laugardagsnammi,“ segir Patience. 1 dós niðursoðin mjólk 1 msk. smjör Panna og trésleif Bræðið smjör á miðlungsheitri pönnu. Hellið niðursoðnu mjólkinni yfir bráðið smjörið og hrærið í stöðugt í 10-15 mínútur. Takið af hitanum þegar karamellan er orðin brún og hægt að snúa við kaldri skeið án þess að karamellan detti af. Mótið að vild og njótið! Berið fram með kaffi eða kaldri mjólk. Faðir Patience er sólginn í heimalagaðar karamellur úr niðursoðinni mjólk enda einstakt hnossgæti.Jarðhnetusúpa (fyrir 4) Þessi dýrindis súpa er ein af töfrandi sælkeramat Gana og vinsæll helgarmatur. Hún er gjarnan borin fram með fufu (fæst í AfroZone) og omutuo (hrísgrjónabollum). 1 dós Creamy Jumbo hnetusmjör 1 dós (70 g) tómatpuré 4 stórir og þroskaðir tómatar 2 stórir skalottlaukar 4 stórar gulrætur Svolítið af brokkólíi (eða öðru grænmeti að eigin vali) Hvítlaukur (eins mikið og vill) Fersk engiferrót (minna en meira ef súpan á ekki að verða of sterk) Salt og pipar 2 bollar sjóðandi vatn Chilipipar 4-8 sveppir Fiskur eða kjöt að eigin smekk Magi/Jumbo fisk-, kjöt, eða grænmetiskrafturATH! Creamy Jumbo hnetusmjör, 70 g tómatpuré, stórir skalottlaukar og magi-kraftur fæst í AfroZone. Mýkið tómatana í sjóðandi vatni, takið af þeim hýðið og maukið aldinkjötið. Setjið Creamy Jumbo hnetusmjör í pott, tvo bolla af vatni, helming af tómatpuréinu og nýlagað tómatmaukið. Látið malla á miðlungshita og hrærið í þar til hráefnið er orðið brúnt með olíu á yfirborðinu (í 15-25 mínútur.) Skerið kjúklingakjötið í bita og gufusjóðið eða léttsteikið í potti í 5 mínútur með salti og stórum kraftkubbi. Takið hýðið af engiferrót, skalottlauk og hvítlauk og bætið saman við kjúklinginn. Hrærið í hráefninu til að kjötið taki í sig bragð. Setjið nú hnetusmjörsblönduna yfir kjúklinginn og bætið við 2 bollum af vatni til viðbótar ef þynna þarf súpuna. Látið sjóða í 20-30 mínútur og hrærið í af og til svo festist ekki við botninn. Bætið við gulrótum og brokkólíi á seinni mínútum suðunnar. Skreytið með fersku spínati eða steinselju. Berið fram með soðnum hrísgrjónum, hrísgrjónabollum, fufu eða banku frá Gana.
Mest lesið Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira