Ástarsorg getur verið sár Elín Albertsdóttir skrifar 14. maí 2017 11:00 Það getur verið sárt þegar kærasti ákveður að slíta sambandi. Guðrún Katrín félagsráðgjafi segir að vel sé hægt að komast yfir þann sársauka. Vísir/Getty
Flestir muna eftir ástarsorg og vonleysi hinnar þekktu persónu Bridget Jones. Örugglega hafa margir sett sig í sömu spor. Leggjast undir sæng og breiða upp yfir haus í örvinglun sinni. En það birtir yfirleitt aftur í lífinu. Ýmislegt skiptir máli þegar vinna þarf úr ástarsorg. Til dæmis hversu lengi þið hafið verið saman. Eruð þið enn vinir eða fór allt í háaloft þegar þið hættuð saman? Guðrún Katrín Jóhannesdóttir, félagsfræðingur hjá Lausninni, er vön að fást við alls kyns erfið mál sem koma upp í sambandi við áföll. Hún segir að fyrst og fremst sé mikilvægt fyrir þann sem er í ástarsorg að tala um líðan sína og tilfinningar við einhvern sem hann treystir, til dæmis vin, fjölskyldumeðlim eða fagaðila. „Ég myndi mæla með því að fólk haldi sinni daglegu rútínu eins og að mæta í skólann eða vinnuna, hreyfi sig og sé duglegt að finna sér eitthvað áhugavert að gera. Eftir sambandsslit er gott að hafa í huga að þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar. Þó svo að alls kyns tilfinningar komi upp í kjölfarið eins og söknuður til þess sem var og átti að verða þá er gott að reyna að veita athygli nýjum tækifærum sem koma upp og jafnvel að leggja sig fram við að skapa ný tækifæri,“ segir hún.Guðrún Katrín Jóhannesdóttir er félagsfræðingur hjá Lausninni.Láta drauma rætast „Sumir láta drauma rætast sem af einhverjum ástæðum lágu í dvala á meðan á sambandinu stóð eins og að fara til útlanda með vini eða vinkonu. Þó svo að annar aðilinn upplifi höfnun við endalok sambands þá er gott fyrir þann hinn sama að reyna að bera virðingu fyrir ákvörðun þess sem vill ljúka sambandinu. Sá sem upplifir ástarsorg ætti að reyna að sleppa tökunum á hinum aðilanum, horfast í augu við orðinn hlut, halda áfram með líf sitt og sýna ferlinu sem hann gengur í gegnum þolinmæði. Það getur tekið tíma að jafna sig á ástarsorg en það sem skiptir mestu er að það birtir alltaf til að lokum. Einstaklingur í ástarsorg ætti til dæmis að varast að einangra sig. Eins er mikilvægt að hann fari ekki að forðast ákveðið fólk eða staði í kjölfarið heldur haldi sínu striki eins og áður.“Lífið er ekki bara slétt og fellt Þegar Guðrún Katrín er spurð hvort ástarsorg geti verið alvarleg, svarar hún: „Ástarsorg er ein af þeim tilfinningum sem fólki finnst erfitt að upplifa og vill helst ekki finna fyrir. Gott er að minna sig á að slæmu tilfinningarnar eru hluti af því að vera manneskja rétt eins og góðu tilfinningarnar. Alveg sama hvað, þá förum við aldrei í gegnum lífið án þess að þurfa að finna til. Þá er mikilvægt að muna að erfiðar og óþægilegar tilfinningar eru ekki hættulegar þótt það geti verið erfitt að takast á við þær. Það er einmitt svo mikilvægt að taka eftir tilfinningum sínum, horfast í augu við þær og takast á við þær. Ef fólki er farið að finnast það vera fast í vítahring neikvæðra hugsana þá getur verið mikilvægt að leita aðstoðar fagaðila.“ Upplifa allir ástarsorg? „Það er í rauninni ekki hægt að alhæfa um það. Sumt fólk upplifir sig til dæmis aldrei ástfangið á ævinni, þar af leiðandi er eiginlega ekki hægt að segja að það lendi í ástarsorg. Til að lenda í ástarsorg þurfum við fyrst að verða ástfangin,“ segir Guðrún Katrín.Hægt að fá hjálp Það er mjög erfitt fyrir báða aðila að slíta sambandi, sérstaklega ef það hefur varað í einhverja mánuði. Það getur farið í gang heilmikið sorgarferli hjá þeim sem fyrir höfnuninni verður. Sá sem slítur sambandinu hefur oft hugsað um það í einhvern tíma. Best er að slíta sambandi strax og viðkomandi finnur að það er ekki að ganga upp. Ekki viðhalda vonlausu sambandi, það gerir engum gott. Flestir unglingar ganga í gegnum ástarsorg og það er ekki skemmtilegur tími. Hins vegar jafnar fólk sig venjulega fljótt á unga aldri. Mun verra mál er þegar sambandið hefur varað í mörg ár og jafnvel barn komið í spilið. Ekki er gott að henda sér í faðm á nýjum kærasta eða kærustu. Það samband mistekst yfirleitt. Betra að láta tímann líða og leyfa sárunum að gróa. Guðrún Katrín tekur á móti fólki sem glímir við mismunandi áföll. Hún segir að fólk leiti til sín af mörgum ástæðum, meðal annars í kjölfar sambandsslita og vegna ástarsorgar. „Gott er að hafa í huga að það er í raun ekkert of lítið eða of mikið til að leita til meðferðaraðila. Sumir hafa áhyggjur af því að það sé veikleiki að leita sér aðstoðar hjá meðferðaraðila en í rauninni er það gagnstætt því það þarf styrk og hugrekki til þess,“ segir hún.
Mest lesið Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira