Ræktar tíu tegundir spíra Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 6. maí 2017 10:15 "Nýsköpun kostar líka svita og tár en skapandi þátturinn hefur mér þótt skemmtilegastur,” segir Katrín. Vísir/GVA
Mér þótti mjög vænt um þessa viðurkenningu. Hún er vissulega hvatning til að halda áfram á sömu braut,“ segir Katrín H. Árnason, viðskipta- og umhverfisfræðingur, um hvatningarverðlaun garðyrkjunnar sem Kristján Þór Júlíusson afhenti henni á sumardaginn fyrsta fyrir hönd Landbúnaðarháskólans. Katrín stofnaði fyrirtækið Ecospíru árið 2012. Það er eina fyrirtækið sem ræktar lífrænar spírur á markað á Íslandi í dag. „Við framleiðum vikulega um tíu mismunandi tegundir spíra,“ upplýsir hún og nefnir meðal annars brokkólí-, blaðlauks-, hvítlauks og baunaspírur, auk sólblóma- og baunagrasa og ýmissa tegunda smájurta. En hvernig hefur gengið að kenna Íslendingum að meta spírur? „Það hefur gengið vonum framar. Meðal annars hafa matreiðslumenn mötuneyta verið tryggir viðskiptavinir og hafa boðið upp á spírur daglega í mötuneytum sínum.+ Eins hefur Áslaug Snorradóttir, matarhönnuður og ljósmyndari, átt ríkulegan þátt í að finna spírum farveg með alls konar mat og með því að fanga þær á mynd, hér má ég til með að nefna súkkulaðisleikjó með blaðlauksspírum sem er bara ótrúlega góður! Svo eru Íslendingar opnir fyrir nýjungum og meðvitaðir um heilsuna, ég tel það hafa hjálpað mikið.“ Spíruræktunina kveðst Katrín hafa lært í Bandaríkjunum og Svíþjóð. Hún er með þrjá starfsmenn í framleiðslunni, auk hennar sjálfrar. „Ég hef verið í meira en fullri vinnu við að byggja upp fyrirtækið síðustu fimm ár og sé ekki að það sé að breytast í bráð. En Ecospíra er sjálfbær í dag og á góðri siglingu. Ég sé mikla möguleika í vöruþróun, meðal annars með þurrkun spíraðra fræja og korns og tel spennandi tíma fram undan.“ Spurð hvort alltaf sé gaman í vinnunni kemur smá hik á Katrínu. „Ég neita því ekki að þetta hefur ekki bara verið gleði og gaman. Nýsköpun kostar líka svita og tár en skapandi þátturinn hefur mér þótt skemmtilegastur. Svo eru engir tveir vinnudagar eins.“
Mest lesið Hvað veistu um… skák? Lífið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið Madison Beer trúlofast NFL-kappa Lífið Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Lífið Fleiri fréttir Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Sjá meira