Omnom fagnar Eurovision með því að gefa súkkulaðipopp Guðný Hrönn skrifar 6. maí 2017 11:00 Omnom kynnir til leiks þetta dásamlega fallega poppkorn.
Súkkulaðiframleiðandinn Omnom Chocolate er í óðaönn að búa til súkkulaðipopp fyrir sumarið. „Poppið mun innihalda 100% stuðning við Hinsegin daga í Reykjavík og mun koma í fimm litríkum glamúrbragðtegundum sem eru lakkrís + hindber, bláber, mangó + ástaraldin, jarðarber og matcha-te,“ segir Hildur Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Omnom Chocolate. Hildur er afar spennt fyrir þessari nýjung og er viss um að hún muni slá í gegn hjá slækerum landsins. ,,Þetta er „confetti“ sem hægt er að borða! Ég er sko hrikalega spennt fyrir þessu poppi fyrir Eurovision-partíið. Loksins get ég borðað skrautið og þarf ekki að þrífa allt „confettið“ upp og henda því eftir gleðina. Þetta er því umhverfisvænt skraut,“ segir Hildur sem kallar sjálfa sig „poppálf“. En Omnom ætlar að taka smá forskot á sæluna í tilefni Eurovision. „Til að hefja leika ætlum við að sjálfsögðu að gleðjast og horfa á Svölu keppa á þriðjudaginn. Við bjóðum alla velkomna þann dag í verslun okkar til að sækja sér frítt box af súkkulaðipoppi til að gæða sér á yfir Eurovision-herlegheitunum!“ Á þriðjudaginn ættu því allir sælkerar að leggja leið sína út á Granda. „Fólk er velkomið í verslun Omnom, Hólmaslóð 4, frá kl. 11.00 til 18.00 að sækja sér poppbox á meðan birgðir endast,“ segir Hildur að lokum.
Eurovision Mest lesið Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Mugison þakkar innilega fyrir sig Tónlist Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Lífið Fleiri fréttir Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“