Söngelsk systkini með þriðju sumartónleikana Stefán Þór Hjartarson skrifar 20. apríl 2017 09:00 Kristín og Guðfinnur munu brátt bæði nema söng í Vínarborg. Kristín er búsett þar en Guðfinnur flytur í haust. Vísir/Ernir „
Við erum að halda okkar þriðju Systkinatónleika. Okkur langaði að gera þetta að árlegum viðburði og það hefur gengið mjög vel. Það er búið að vera uppselt öll síðustu ár, en þetta hefur alltaf verið í Hannesarholti hingað til. Nú erum við aðeins að stækka við okkur og erum búin að færa okkur yfir í Fella- og Hólakirkju,“ segir Guðfinnur Sveinsson en hann og systir hans, Kristín Sveinsdóttir, standa fyrir árlegum Systkinatónleikum sem fara nú fram í þriðja sinn á sumardaginn fyrsta. „Kristín er búin að syngja síðan hún var lítil, fjögurra eða fimm ára. Ég er hins vegar tiltölulega nýbyrjaður – byrjaði að læra fyrir þremur og hálfu eða fjórum árum. Þegar ég var að byrja að koma mér áfram í söngnum eftir að ég byrjaði í náminu þá fór þetta í gang hjá okkur,“ segir Guðfinnur en hann hefur næsta haust söngnám í Vín, en þar í borg nemur Kristín einmitt líka söng um þessar mundir. Hún lauk nýlega við uppsetningu Töfraflautunnar á La Scala, þannig að fyrir utan að selja upp á árlega tónleika sína er nóg annað að gera hjá þessum söngelsku systkinum. „Konseptið er að fá alltaf ungt tónskáld með okkur á hverju ári til að semja dúett handa okkur, okkur finnst það æðislega gaman. Við blöndum þá alltaf einu nýju verki við íslensk ljóð, erlendum ljóðum, dúettum og aríum. Í ár er það Hreiðar Ingi Þorsteinsson sem er með okkur og er að semja rosalega flott verk fyrir okkur fyrir tvo einsöngvara og kammerkór – það verður sextán manna kór með okkur.“ Með þeim verður fyrir utan kammerkórinn, sem samanstendur af gömlum söngfélögum Guðfinns og Kristínar úr kór Langholtskirkju, Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari. Meðal þeirra verka sem þau systkinin flytja eru lög eftir Jón Ásgeirsson, Ingibjörgu Þorbergs, Brahms, Schubert, Wolf, Donizetti og Mozart. Síðan er það auðvitað hápunktur kvöldsins þegar þau frumflytja spánnýtt verk eftir Hreiðar Inga. Almennt miðaverð á tónleikana er 2.000 krónur og það er kannski ekki vitlaust að tryggja sér miða í tíma því að síðustu ár hefur víst hreinlega þurft að vísa fólki frá.
Mest lesið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið Ellen verður að Dóru á ný Lífið „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Lífið Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Lífið Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Lífið Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Fleiri fréttir Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sjá meira