Teiknuðu manneskjur í lausu lofti Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. apríl 2017 09:15 Sem myndlistarkennari skynjaði Ásdís Kalman óöryggið sem birtist í verkum barnanna. Vísir/GVA
Hælisleitendur hafa nákvæmlega ekkert að gera og mér datt í hug að setja upp vikuleg námskeið fyrir börn og ungmenni úr þeirra hópi, í samvinnu við Rauða krossinn. Oft komu í kringum fimmtán. Þau vissu öll að til greina kæmi að verkin yrðu sett á sýningu,“ segir Ásdís Kalman, myndlistarkennari og meistaranemi í Listaháskólanum sem sett hefur upp sýninguna Börn á flótta í anddyri Þjóðminjasafnsins. „Ég hafði ákveðnar hugmyndir um verkefnið en það varð öðruvísi en ég bjóst við, enda átti ég í erfiðleikum með að koma hugsunum mínum til skila til barnanna. Fá þeirra skildu ensku og engin íslensku,“ lýsir Ásdís en segir verkefnið hafa snúist um að gefa börnunum tækifæri til að tjá sig og einnig að skapa vellíðan og öruggt umhverfi í smá stund.Á sjálfsmynd einnar stúlku er enginn munnur. „Þessi stúlka talaði ekki neitt því enginn í hópnum skildi hennar tungumál,“ lýsir Ásdís. Fréttablaðið/GVAÁsdís telur einungis tvö ungmenni eftir á landinu sem tóku þátt í listasmiðjunum. „Ef börnin hættu að mæta vissi ég aldrei hvort það væri af því þau hefðu verið flutt út aftur eða væru komin í skóla. Sýningin snýst einmitt um það tómarúm sem þau voru í. Stundum var Ísland þriðja eða fjórða landið sem þau komu til, mörg vissu að það væri engin von en reyndu að halda áfram að lifa eins og aðrir.“ Sem myndlistarkennari skynjaði Ásdís óöryggið sem endurspeglaðist í verkum barnanna og fannst það átakanlegt. „Þau áttu í erfiðleikum með að klára myndirnar og þau teiknuðu manneskjur í lausu lofti eins og þær vantaði tengingu við jörðina.“ Sýningin er hluti af Barnamenningarhátíð og henni lýkur á morgun. Ókeypis er inn.
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira