Það þýðir ekkert að vorkenna sjálfri sér Guðný Hrönn skrifar 13. apríl 2017 09:00 Inga Hrönn Ásgeirsdóttir fékk áhuga á líkamsrækt í kringum fermingaraldur og þá varð ekki aftur snúið. vísir/stefán
Í byrjun mánaðar bar Inga Hrönn Ásgeirsdóttir sigur úr býtum í sínum flokki á Oslo Grand Prix fitness-mótinu. Ekki nóg með að Inga hafi unnið sinn flokk heldur vann hún líka „overall“ keppnina. Inga segir gott skipulag vera lykilinn „Mótið í ár var það stærsta hingað til með um 340 keppendur. Ég keppi í fitness-flokki kvenna og vann þann flokk. Ég vann „overall-ið“ líka en það er þegar sigurvegarar úr hverjum hæðar- eða aldursflokki eru bornir saman í lok mótsins, stigahæsti keppandinn þar er þá heildarsigurvegari mótsins. Þannig að þetta var mjög stór sigur og maður er alveg í skýjunum yfir þessu,“ segir Inga Hrönn Ásgeirsdóttir um mótið sem hún vann á dögunum. Spurð út í hvað sé skemmtilegast annars vegar og erfiðast hins vegar við sportið segir Inga Hrönn: „Það skemmtilegasta við sportið er bara að sjá þessar breytingar á líkamanum, það er magnað að fylgjast með því hvernig maður getur mótað líkamann með þessum hætti. Það erfiðasta er náttúrulega niðurskurðurinn sem hefst tólf vikum fyrir mót. Þá fer maður að skera niður hitaeiningar, en þó ekki þannig að maður verði neitt svangur. Ég er alveg að borða á tveggja tíma fresti yfir daginn en fæðið er einhæft og leiðinlegt. Ég er algjör nammigrís svo ég vakna yfirleitt á hleðsludögum, sem sagt nammidögum, eins og barn á jólum! Ég missi mig samt ekkert,“ segir Inga Hrönn og hlær. „Ég myndi segja að skipulag væri númer 1, 2 og 3 en forgangsröðun númer 4,“ segir Inga Hrönn spurð út í hver galdurinn sé á bak við að ná góðum árangri. „Þú þarft í fyrsta lagi að vilja ná árangri því þetta tekur hellingstíma og þú þarft að vera tilbúinn að fórna ýmsu.“„Maður má ekki detta í þann pakka að fara að vorkenna sér af því að maður má ekki fá sér súkkulaðiköku með kaffinu, maður þarf bara að minna sig á að það má alveg borða þessa köku, en maður kýs að gera það ekki á þessum tímapunkti. Svo þarf maður að skipuleggja nokkra daga fram í tímann, elda máltíðir fyrir næstu daga og raða æfingum í kringum vinnu og fjölskyldu.“ „Svo skemmir auðvitað ekki að vera með góða aðila á bak við sig,“ útskýrir Inga Hrönn. Hún segir að mamma hennar og pabbi séu hennar stærstu aðdáendur. Vaknar klukkan 6.00 og er sofnuð fyrir 22.00Inga hefur náð góðum tökum á skipulaginu þrátt fyrir að það sé mikið að gera hjá henni. „Það er alltaf nóg að gera hjá mér! Ég er í fullri vinnu ásamt því að reka verslunina Momo með mömmu minni. Og ég á sjö ára barn, Óðin Hrafn. Ofan á allt er ég nýútskrifuð úr mastersnámi, svo það er aldrei lognmolla í kringum mig.“ Í undirbúningi fyrir mót byrjar dagurinn alltaf snemma hjá Ingu, eða klukkan 6.00. „Þá tek ég morgunbrennslu, ég nenni yfirleitt ekki út í rækt til að brenna svo ég keypti mér þrekstiga sem ég er með í svefnherberginu, voða eðlilegt allt saman. Svo þarf að gefa stráknum morgunmat, útbúa nesti og græja sig í vinnuna. Tvisvar í viku tek ég æfingu í hádeginu, aðra daga erum við mæðginin mætt á æfingu í Egilshöllinni strax eftir vinnu. Eftir vinnu eða æfingu tekur heimanámið og kvöldmaturinn við. Það getur verið hálfgert púsl rétt fyrir mót þar sem það þarf að elda þríréttað á hverju kvöldi. Ég og kærastinn stillum yfirleitt mótin okkar saman þannig að við erum oftast bæði í niðurskurði en erum ekki að borða sama matinn. Sonurinn fær svo bara venjulegan heimilismat. Eftir að Óðinn er kominn upp í rúm þarf að undirbúa næsta dag, svo ég er yfirleitt komin upp í rúm ekki seinna en 22.00,“ útskýrir Inga sem leggur mikla áherslu á að verja góðum tíma með syni sínum. „Ég æfi á morgnana þegar hann er sofandi eða á meðan hann er sjálfur á fótboltaæfingum, þá er ég ekki að taka tíma af „okkar tíma“ til að æfa. En félagslífið situr oft á hakanum, en þegar tími gefst þá reyni ég að hitta vinkonurnar.“ „Ég þarf á þessari rútínu að halda til að mér líði vel bæði andlega og líkamlega. Ég lenti í bílslysi fyrir nokkrum árum þar sem ég hálsbrotnaði og ég tel að öll þessi hreyfing sé það sem heldur mér gangandi. Ég finn ef ég tek langa hvíld hvernig bólgurnar magnast upp í bakinu og ég hætti að geta snúið höfðinu en það gengur fljótt til baka um leið og ég byrja að hreyfa mig aftur,“ segir Inga. Fram undan hjá Ingu eru svo frekari keppnir. „Ég er að fara að keppa á Íslandsmeistaramótinu í Háskólabíói á föstudaginn langa og svo stefni ég á Evrópumeistaramót á Spáni í byrjun maí. Ég ætla samt að leyfa mér smá páskaegg eftir mótið hér heima. En eftir mót tek ég svo alltaf smá hvíld, gef líkamanum smá stund til að jafna sig eftir keyrsluna.“
Mest lesið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Tíska og hönnun Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Lífið Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Bíó og sjónvarp Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Lífið Fleiri fréttir Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Áttaði sig á stöðunni á fundi með Höllu Ungt athafnapar keypti hönnunarhús Margrétar í Garðabæ Sjá meira