Shruthi, sem er arkitekt og hefur kennt Íslendingum indverska matargerð, vakti athygli á málinu á Facebook-síðu flugvallarins í Frankfurt þar sem hún velti upp þeirri spurningu hvort það gæti talist hluti af eðlilegri öryggisgæslu að láta farþega fækka fötum og standa í nærfötum einum klæða. Shruthi upplýsir að hún hafi verið á leið í flug frá frá Frankfurt til Berlínar þaðan sem flogið var áfram heim til Íslands.
„Við vorum á heimleið til Íslands frá Indlandi með viðkomu í Frankfurt með fjögurra ára dóttur okkar þegar við vorum beðin um að stíga til hliðar. Um væri að ræða öryggisleit af handahófi án frekari skýringa,“ segir Shruthi.

Shruthi segist nýlega hafa gengist undir aðgerð á kvið og því beðið starfsmenn í öryggisgæslu að fara varlega þegar þeir þreifuðu á henni við líkamsleitina. Þeirri beiðni hafi ekki verið tekið fagnandi og starfsmaður í öryggisgæslunni endurtekið öskrað á hana. Yfirmaður starfsmannsins hafi verið sama sinnis, Shruthi ætti að fækka fötum.
„Af hverju eru farþegar beðnir um að fækka fötum? Mér finnst glatað að þurfa að spila út kynþáttaspilinu (e. the race card) en ég var eini farþeginn sem var tekinn afsíðis og eftir að starfsmenn urðu þess varir að ég horfði endurtekið í áttina til eiginmanns míns skiptu þeir skyndilega um skoðun og létu nægja að þreifa á mér við leitina.
Málið hefur vakið mikla athygli í Indlandi þar sem utanríkisráðherrann, Sushma Swaraj, krefst svara frá konsúlnum í Þýskalandi. Nýtti hún Twitter til að setja pressu á flugvöllinn í Frankfurt vegna þessa.
Raveesh - Plz send me a report on this. @CGIFrankfurt https://t.co/Aa2iljmsIG
— Sushma Swaraj (@SushmaSwaraj) April 1, 2017
Shruthi tók þátt í vel heppnuðu markaðsátaki fyrir jólin 2015 þar sem fólk af erlendu bergi brotið deildi reynslu sinni af verunni á Íslandi.
Einar Hlér Einarsson, eiginmaður Shruthi, sagði í samtali við Vísi að þau myndu ekki tjá sig frekar um málið.