Sjáðu ótrúlega breytingu á manneskju sem fór í gegnum kynleiðréttingarferlið Stefán Árni Pálsson skrifar 8. apríl 2017 16:00 Ótrúleg breyting.
Undanfarna áratugi hafa réttindi transfólks aukist til muna og er það orðið almennt viðurkennt að vera transmanneskkja í hinum vestræna heimi. Vissulega er langt í land en staðan er töluvert betri í dag en hún var fyrir tuttugu árum. Samkvæmt rannsókn sem gerð var árið 2011 eru um 1,4 milljónir manna trans í Bandaríkjunum. Jaimie Wilson er trans sem starfar sem tónlistarmaður. Wilson er með um 160.000 fylgjendur á Instagram og hefur vakið mikla athygli fyrir þær myndir sem birtast á Instagram-inu. Þar leyfði hann fylgjendum sínum að fylgjast með breytingunni þegar hann fór frá því líta út eins og kona yfir í það að líta út eins og karlmaður. Breytingin er með ólíkindum og erfitt að ímynda sér að Wilson hafi einu sinni verið kona. Hann hefur núna farið í gegnum hormónameðferð sem og aðgerð og lítur ótrúlega vel. „Þegar ég kom út þá neitaði fólk að trúa þessu því ég hafði verið svo kvenleg í öll þessi 18 ár,“ segir Wilson. „Ástæðan fyrir því að ég vil sýna muninn á mér fyrir og eftir er að það skiptir aldrei máli hvernig manneskjan lítur út. Ef hún hefur kjarkinn til þess að segja að hún sé trans, samkynhneigð, tvíkynhneigð eða hvað sem er þá bið ég alla einfaldlega að trúa þeirri manneskju.“ Fjölskylda Wilson hefur afneitað honum. „Ég sakna vissulega fjölskyldulífsins og foreldra minna. Það er leiðinlegt að foreldrar manns séu ekki lengur stoltir af manni. Ég sakna aftur á móti ekki að líða ömurlega með sjálfan mig og að líða illa í fötunum sem ég klæðist." Hér að neðan má sjá nokkur dæmi um það hversu mikil breyting hefur orðið á Wilson.
Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Tíska og hönnun Fleiri fréttir Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Sjá meira