Lærði macramé á YouTube Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 21. mars 2017 11:00 Ninna Stefánsdóttir og Pálmi Ketilsson. Mynd/Hera Ketilsdóttir
Hjónin Ninna Stefánsdóttir og Pálmi Ketilsson búa til heimilisvörur með macramé-hnýtingum undir heitinu MARR. Áhugamál sem vatt hratt upp á sig og varð að ástríðu. „Mig langaði í hnýtt vegghengi fyrir ofan rúmið okkar. Hengin sem mig langaði í á netinu kostuðu þó talsvert og þar ofan á kom svo sendingarkostnaðurinn. Ég ákvað því að læra sjálf að hnýta macramé og gera mitt eigið hengi,“ segir Ninna Stefánsdóttir en hún og eiginmaður hennar Pálmi Ketilsson, nýta hverja lausa stund til þess að hnýta blómahengi, vegghengi og hillubera. Framleiðslan varð að lokum til þess að þau settu á fót merkið MARR.„Eftir að ég hafði setið klukkutímum saman uppi á eldhúsbekk við að hnýta og koma hillunni saman hengdum við hana upp, virtum hana fyrir okkur á veggnum og hugsuðum bæði, „heyrðu, þetta er eitthvað!““„Hugmyndin hafði gerjast með okkur í talsverðan tíma og vefsíðan fór svo í loftið fyrir tveimur vikum. Macramé-heimurinn er mun stærri en ég hafði gert mér grein fyrir,“ segir Ninna. „Ég lærði hnýtingarnar á YouTube og einnig er hægt að kaupa sér námskeið á netinu. Þarna fann ég handverk sem á mjög vel við mig en ég hef til dæmis aldrei verið mikið fyrir prjónaskap. Ég hef oftar farið út í byggingavöruverslun eftir við til að smíða eitthvað svo það kom fólkinu í kringum mig ekkert á óvart þegar ég byrjaði á þessu,“ segir Ninna.Jónína byrjaði að hnýta blómahengi og fór svo fljótlega að hnýta hillubera.Þetta er eitthvað!„Þetta er ótrúlega skemmtilegt áhugamál sem varð að ástríðu. Ég byrjaði á blómahengjum sem smám saman þróuðust út í hillubera, af því að okkur vantaði hillu í eldhúsið. Eftir að ég hafði setið klukkutímum saman uppi á eldhúsbekk við að hnýta og koma hillunni saman hengdum við hana upp, virtum hana fyrir okkur á veggnum og hugsuðum bæði, „heyrðu, þetta er eitthvað!“ Við helltum okkur út í að þróa hilluna áfram og ég komst ekkert í að hnýta vegghengin sem ég hafði ætlað mér upphaflega að gera fyrr en miklu seinna. Hnýtingarnar eru frekar seinleg vinna,“ segir Ninna. Hún hafi því fljótlega virkjað eiginmanninn líka. „Pálmi aðstoðar mig en við erum þrjá til fjóra tíma að hnýta í eina hillu. Hann er frábær á skærunum því það þarf mikið að klippa. Hann sér einnig um heimasíðuna.“Upphafið að MARR var löngun Jónínu til að eignast hnýtt hengi fyrir ofan rúmið.Fyrir utan macramé-hnýtingarnar stundar Ninna mastersnám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. MARR hefur hins vegar vaxið hraðar en hún átti von á svo fljótlega þurfti hún að minnka við sig námið. „Við höfum fengið svo frábærar viðtökur og erum ótrúlega hamingjusöm með þetta. Það gefur manni kraftinn til þess að halda áfram. Planið er að fleiri komi inn í MARR með vorinu, meðal annars fáum við smið til liðs við okkur. Við sjáum fyrir okkur fleiri útgáfur af því sem við erum þegar að gera og að bæta við fleiri vörum. Það er svo ótrúlega margt sem mig langar til að gera. Hengið fyrir ofan rúmið okkar er ekki komið enn,“ segir hún hlæjandi. „Ætli ég endi ekki bara á því að þurfa að kaupa mér það annars staðar.“ Nánar má forvitnast um macramévörurnar á marr.is
Mest lesið Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Lífið samstarf Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira