Skápur sem pabbi Rebekku smíðaði endaði á Sorpu fyrir mistök Guðný Hrönn skrifar 28. mars 2017 12:30 Rebekka Sigríður vonast til að fá skápinn aftur.
Rebekka Sigríður Pétursdóttir hefur undanfarna daga leitað hátt og lágt af húsgagni sem hún fór með á Sorpu þann 12. mars fyrir mistök. Um skáp sem pabbi hennar smíðaði er um að ræða. „Pabbi minn, Pétur Freyr, smíðaði skápinn sem sveinsverkefni í kringum aldamótin. Hann hafði afrekað að klára nám og var yfir sig stoltur af gripnum. Þetta er fyrsta mublan sem hann smíðaði og montaði sig mikið. Síðan þá hefur hann smíðað heilmikið af fallegum munum sem prýða heimilið mitt,“ segir Rebekka. Rebekka ákvað nýverið að flytja inn í íbúð föður síns en hann lést 21. desember. Rebekka er nú í óða önn við að taka íbúðina í gegn en fyrsta skref var að fara á Sorpu með hluti sem máttu missa sín. „Það var farin ferð í Sorpu, sunnudaginn 12. mars, með ónýta þvottavél og nokkra hluti sem höfðu misst notagildi sitt. Í ótrúlegri fljótfærni fór skápurinn með í gáminn.“ „Tæpum tveimur vikum síðar sat ég og talaði við ömmu mína sem lá á spítala eftir skyndileg veikindi. Handverk pabba barst í tal og hún sagði mér hvað hann hafi verið stoltur af þessum fyrstu smíðum. Hann hafði beðið hana að passa upp á skápinn. Það var þá sem ég gerði mér grein fyrir því að skápurinn hefði óvart farið með í Sorpu,“ útskýrir Rebekka sem fékk þær upplýsingar um að skápurinn hefði verið sendur í Góða hirðinn og hann var keyptur skömmu síðar. Rebekka skrifaði pistil um málið á Facebook í síðustu viku, í von um að einhver gæti veitt upplýsingar um hvar skápurinn væri niðurkominn. „Ég deildi pistlinum á ýmsar síður og fékk ótrúleg viðbrögð. Ókunnugt fólk hefur deilt þessu áfram og vonar með mér að skápurinn finnist. Fjölskyldan hefur lagst á eitt við að koma þessu á framfæri og nú hafa verið útbúnar auglýsingar til þess að hengja upp í Góða hirðinum og víðar. Mér hafa enn ekki borist neinar upplýsingar um hvar hann er en ég held svo fast í vonina að við fáum hann aftur.“ Rebekka er tilbúin að borga fyrir skápinn ef eigandi skápsins kemst í leitirnar. „Ég hef enga ákveðna upphæð í huga en skápurinn hefur gríðarlegt tilfinningalegt gildi fyrir okkur, sérstaklega þar sem pabba var lofað áður en hann dó að við myndum passa upp á hann.“
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira