Pat Metheny á leið til landsins Atli Ísleifsson skrifar 16. mars 2017 11:31 Pat Metheny.
Bandaríski djasstónlistarmaðurinn Pat Metheny er á leiðinni til landsins en hann mun halda tónleika í Hörpu laugardaginn 17. nóvember. Metheny var ungur farinn að spila með fremstu djasstónlistarmönnum í Kansas City og tvítugur að aldri var hann farinn að láta að sér kveða á alþjóðlegum vettvangi. Í tilkynningu segir að hann hafi fljótt getið sér orð fyrir afar persónulegan stíl með ljóðrænum og í senn hrynföstum spuna sem hafi sótt ríkulega í swing, melódíu og blús jasshefðarinnar. „Með fyrstu plötu sinni, Bright Size Life (1975), má segja að hann hafi endurmótað hlutverk gítarsins innan jassins fyrir nýja kynslóð tónlistarmanna. Allan sinn ferill hefur hann verið ötull frumkvöðull við að tileinka sér nýja tækni og jafnframt haldið áfram að þróa möguleika gítarsins. Fjölhæfni Methenys á varla sína hliðstæðu, sama hvaða hljóðfæri á í hlut. Um árin hefur hann spilað með jafn ólíkum tónlistarmönnum og Steve Reich, Ornette Coleman, Joni Mitchell, Herbie Hancock og David Bowie. Auk afreka sinna sem afburðaflinkur gítarleikari hefur Metheny einnig sinnt kennslu í ríkum mæli. 18 ára gamall varð yngstur til að kenna við University of Miami og ári síðar endurtók hann leikinn við Berklee College of Music, þar var hann gerður að heiðursdoktor tuttugu árum síðar (1996) svo fátt eitt sé talið,“ segir í tilkynningunni. Með Metheny í för verða trymbillinn Antonio Sanchez, fjórfaldur Grammy-verðlaunahafi, og á píanó verður Gwilym Simcock. Um bassaleik sér hin ástralska Linda Oh. Miðasala hefst miðvikudaginn 22. mars á vef Hörpu og á tix.is.
Mest lesið Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Það er komið gó hjá Bó Lífið Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist Svala minnist pabba síns Lífið Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Tónlist Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Tekur við af dóttur kærastans Lífið Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Bíó og sjónvarp Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Lífið Fleiri fréttir Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Sjá meira
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist