Leikhús er masókískt og geggjað Vera Einarsdóttir skrifar 17. mars 2017 11:30 "Ég kann ekkert að mála mig og er með mjög ófókuseraðan fatasmekk. Ég veit ekkert hvar mörkin á milli erfða og áhrifa liggja en ég hafði í það minnsta meiri áhuga á að lyfta þungum steinum og labba með þá í kringum blokkina mína heldur en að teikna sól." MYND/ERNIR
Saga Garðarsdóttir ætlaði ung að árum að verða skipstjóri. Henni fannst skemmtilegra að burðast með steina en teikna sól og datt ekki í hug að hún myndi eignast kærasta. Saga er forfallinn leikhúsunnandi. Hún hefur unun af því að sjá gott leikhús og gera gott leikhús. Það var þó ekki hennar fyrsta val að verða leikkona. „Ég ætlaði alltaf að verða skipstjóri eins og afi minn og langafi. Svo sagði heimilislæknirinn mér að þá þyrfti ég alls kyns bólusetningar. Kannski var hann að plata mig svo ég myndi hætta að vola yfir sprautum en það eina sem breyttist var að ég hætti við að fara á sjó. Plan B var að verða leikkona.“Saga, sem er alin upp á Seltjarnarnesi, býr nú í Vesturbænum. Hún nýtur sín best nærri miðbænum.MYND/ERNIRBullsjúkur krakki Veistu hvernig sá draumur kviknaði?„Það á sér eflaust margar skýringar. Ég var mjög bullsjúkur krakki og ólst upp á heimili þar sem var mikið bullað. Ég hafði líka mjög ríka þörf fyrir að láta í mér heyra,“ segir Saga og nefnir dæmi: „Ég fékk svona öskurapahnúta á raddböndin því ég öskraði allt sem ég vildi segja. Ég skrifaði líka mjög illa því ég hafði enga þolinmæði til að vanda mig. Ég vildi koma því sem ég var að hugsa frá mér sem fyrst og það háir mér enn. Ég er með handskrift á við átta ára krakka og slæ á lyklaborð með tveimur puttum, max,“ upplýsir Saga sem fann tjáningarþörfinni síðar farveg í listinni. ,,Kannski tengist starfsvalið líka nafninu. Krakkar geta tekið allt svo bókstaflega og mér fannst mjög mikilvægt að standa undir bæði stjörnumerki og nafni,“ segir Saga sem er ljón. „Kannski hefði ég orðið skipstjóri ef ég hefði heitið Alda og verið fiskur.“Skrifar með Hugleiki Þessa dagana skrifar Saga handrit að leikriti í fullri lengd ásamt Hugleiki Dagssyni. „Þetta verður lengsta leikrit sem Shakespere hefur ekki skrifað, en aðallega mjög fyndið. Þetta verður algjört leikhús-leikrit sem krefst rauðra tjalda, snúningssviðs og að minnsta kosti sextán búninga.“ Að sögn Sögu vinna hún og Hugleikur vel saman. „Við þykjum bæði oft mun pólitískari en við ætlum okkur. Það er mjög gaman. Þá hugsa ég: Jess, fólk heldur að ég viti alls konar.""Þegar ég var lítil var ekki talað við mig um að ég væri sæt heldur miklu frekar að ég væri sniðug og sterk. kannski er það ástæðan fyrir því að ég hef lagt miklu meiri áherslu á það sjálf.Ágengt listform Þetta verður þriðja leikrit Sögu í fullri lengd en hún skrifaði Kenneth Mána með Jóhanni Ævari og Birni Thors fyrir Borgarleikhúsið og „Þetta er grín án djóks“ með Dóra DNA sem var frumsýnt í Hofi á Akureyri 2015 og síðar sýnt í Eldborg. „Það er það skemmtilegasta sem ég hef gert. Ég elska leikhús. Það er svo margt sem getur klikkað og það þarf oft svo lítið til að leikhús verði vont eða óbærilegt. Þess vegna er svo gaman þegar það heppnast. Leikhús er líka svo ágengt listform. Ef þú kannt ekki að meta málverk þá er bara hægt að líta undan. Eins er hægt að loka leiðinlegri bók. Ef þú lendir á vondri leiksýningu ertu föst með leikurunum og öðrum gestum og þið verðið bara að þjást í sameiningu, allavega fram að hléi. Það er svo masókískt og geggjað.“ Saga situr líka við og skrifar sjónvarpssketsa með leikkonunni Dóru Jóhannsdóttur. „Við munum sjá um grínið á Degi rauða nefsins í ár. Það er markmið bæði okkar og UNICEF að það verði betra en nokkru sinni fyrr.“ Saga er auk þess eftirsóttur skemmtikraftur og er víða fengin til að vera með uppistand. "Mér finnst skemmtilegast þegar mér tekst að segja brandara sem er sannur. Þegar ég næ utan um eitthvert flókið mál með einni afhjúpandi setningu sem er bara fyndin af því að hún er sönn. Svo er ég reyndar vandræðalega veik fyrir heimatilbúnum aulabröndurum sem falla í misgóðan jarðveg. Best ef ég hef þá beint frá pabba.“ Saga neitar því þó ekki að hana langi til að spreyta sig á meiri dramatík. „Jú, mig er mjög mikið farið að langa til að leika alvarlega lögreglukonu sem leysir einhvern flókinn glæp á mjög ófyndinn hátt. Það er bara eðlilegt að vilja spreyta sig á fleiri sviðum. Allt hefur þó sinn tíma og enn sem komið er er ég ekki uppiskroppa með grínhugmyndir.”Getur verið hver sem er Saga tilheyrir Improv Ísland hópnum sem er með vinsælar spunasýningar alla miðvikudaga í Þjóðleikhúskjallaranum. Þar er að finna blöndu af leikurum og áhugafólki sem spreytir sig á ólíkum spunaformum frammi fyrir fullum sal af fólki. Reynir það ekki á taugarnar? „Jú það getur gert það. Hver sýning er einstök. Sumar geta verið erfiðar og aðrar frábærar. Þetta er hins vegar besta æfing í heimi í núvitund og að losa sig við hégóma. Þú getur ekki lært texta eða undirbúið þig öðruvísi en að sleppa egóinu og tæma hugann. Það er líka gaman að hugsa til þess að þú býrð kannski til frábæra senu ásamt mótleikara þínum sem svo bara hverfur í hafsjó sniðugra spunasena og verður aldrei endurleikin. Það finnst mér heillandi. Það besta við spuna er þó að mínu mati að þú getur verið hver sem er. Þú þarft heldur ekki búninga eða leikmuni. Þú getur verið Bubbi Morthens, rafmagnstæknifræðingur og húsfluga allt í sömu sýningunni. Komandi úr leikhúsheiminum þar sem hlutverk kvenna geta verið takmörkuð er þetta geggjað. Þú getur búið til þitt eigið draumahlutverk á staðnum.“Ekki góð í að vera sæt Sögu hefur líka brugðið fyrir í auglýsingum og sat nú síðast fyrir í sumarbæklingi ferðaskrifstofu. Aðspurð segir hún verkefnið hafa verið skemmtilegt en að fyrirsætustörf reynist henni þó nokkur hausverkur. „Ég er ekkert mjög góð í að vera sæt. Ég kann til dæmis ekkert að mála mig og er með mjög ófókuseraðan fatasmekk. Þegar ég var lítil var ekki talað við mig um að ég væri sæt heldur miklu frekar að ég væri sniðug og sterk. Ég er mjög þakklát fyrir það og kannski er það ástæðan fyrir því að ég hef lagt miklu meiri áherslu á það sjálf. En svo fæðumst við líka bara einhvern veginn og erum ólík sem börn. Ég veit ekkert hvar mörkin á milli erfða og áhrifa liggja en ég hafði í það minnsta meiri áhuga á að lyfta þungum steinum og labba með þá í kringum blokkina mína heldur en að teikna sól. Þá heillast ég mest af fólki sem er afslappað í hvaða aðstæðum sem er, hvort sem það er vel eða illa til haft,“ segir Saga sem varð á unglingsárum mjög hissa þegar einhver vildi byrja með henni. „Eflaust voru það bara venjulegir unglingakomplexar. Ég var hrædd um að ég myndi aldrei prófa að fara í sleik og falla á öllum samræmdu prófunum.“Allt annað líf Saga er nýtrúlofuð tónlistarmanninum Snorra Helgasyni en þau hafa verið saman í að verða þrjú ár. „Ég mæli með þessu. Það ættu allir að trúlofa sig að minnsta kosti einu sinni. Manni líður bara rosalega vel. Mér finnst ég líka vera beinni í baki og á auðveldara með að fara fyrr að sofa.“ Saga sá Snorra fyrst í Vesturbæjarlauginni. „Við skiptumst svo á að táldraga hvort annað þangað til ég spurði hann hvort hann vildi byrja með mér. Hann hló að mér.“ Saga segir þau stefna á brúðkaup næsta sumar. „Okkur langar að giftast úti á landi svo þeir sem koma geti síður flúið aftur heim og verði að drekka með okkur kampavín í 24 tíma, eða þangað til við skiljum og giftumst aftur.“ Saga segist samt ekki ætla að pæla mikið í þessu fyrr en nær dregur. „Nú vil ég bara njóta þess að sofa út og safna plöntum, en markmið mitt í lífinu er að verða nógu rík til að geta alltaf sofið til hádegis og að þurfa aldrei að fljúga með lággjaldaflugfélagi.“Saga ásamt hluta af Improv ísland hópnum, sem hún elskar.
Mest lesið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Fleiri fréttir Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Sjá meira