Fær vægan fangelsisdóm fyrir manndráp Guðsteinn Bjarnason skrifar 22. febrúar 2017 07:00 Ísraelski hermaðurinn Elor Azaria ásamt móður sinni stuttu áður en dómur var kveðinn upp í gær. vísir/epa
Ísraelski hermaðurinn Elor Azaria hlaut í gær 18 mánaða fangelsisdóm fyrir manndráp. Hann skaut til bana Palestínumanninn Abdel al-Fattah al-Sharif í bænum Hebron á Vesturbakkanum þann 24. ágúst á síðasta ári. Leiðtogar Palestínumanna og ýmis mannréttindasamtök hafa fordæmt þennan dómsúrskurð, sagt hann alltof vægan. „Azaria hefði átt að fá ævilangt fangelsi,“ hefur fréttastofan Al Jazeera eftir Jamal Zahalka, palestínskum þingmanni á Ísraelsþingi. „Þetta mun ekki verða öðrum byssuglöðum hermönnum til fælingar.“ Hann segir að þúsundir annarra ísraelskra hermanna hafi drepið Palestínumenn, en engin réttarhöld hafi verið haldin yfir þeim. Margir Ísraelar hafa hins vegar sagt dóminn of þungan. Helst hefði hann átt að sleppa alfarið við fangelsisdóm. Benjamín Netanjahú forsætisráðherra hefur sagt að náða eigi Azaria og Miri Regev, menningarráðherra í stjórn Netanjahús, hefur sagt að Azaria ætti ekki að sitja einn einasta dag í fangelsi. Dómstóllinn taldi hins vegar að verknaðurinn hafi bæði brotið gegn siðareglum ísraelska hersins og skaðað ísraelskt samfélag. Auk þess hafi Azaria aldrei sýnt neina iðrun. Myndband náðist af því þegar Azaria skaut al-Sharif. Þetta myndband fór víða á netinu og í fjölmiðlum. Þar sést greinilega að Sharif lá særður á götunni og hafði legið þar góða stund þegar Azaria tekur upp á því að skjóta hann. Sharif hafði, ásamt öðrum Palestínumanni, ráðist með hnífum á ísraelska hermenn. Þeim tókst að særa einn hermann. Ísraelsku hermennirnir skutu þá á árásarmennina. Annar þeirra lést strax en hinn, Sharif, særðist og lá á götunni með lífsmarki þangað til Azaria skaut á hann. Litið hefur verið á þetta dómsmál sem prófstein á ísraelskt réttarfar. Azaria var sakfelldur í síðasta mánuði fyrir manndráp. Dómarinn sagði hann hafa reynt að réttlæta verknaðinn en ekki tekist það. Fjölskylda Sharifs sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hún fordæmdi dómsúrskurðinn en sagðist ekki vera undrandi. „Við vissum það frá upphafi að þetta væru sýndarréttarhöld,“ segir í yfirlýsingunni. „Dómurinn sem hann hlaut er vægari en palestínskt barn fær fyrir að kasta steinum.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Sjá meira