Færeyingar kjósa um nýja stjórnarskrá á næsta ári atli ísleifsson skrifar 11. febrúar 2017 23:15 Frá Þórshöfn í Færeyjum. Vísir/gva
Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja, hefur greint frá því að þjóðaratkvæðagreiðsla um færeyska stjórnarskrá muni fara fram þann 25. apríl 2018. Í yfirlýsingu frá færeysku landsstjórninni segir að hún muni vinna að því að tryggja stjórnarskránni sem viðrækastan stuðning, bæði á þingi og meðal færeysku þjóðarinnar. Stjórn og stjórnarandstaða hafi á síðustu mánuðum reynt að ná saman um texta sem byggir á tillögu sem hefur verið í þróun síðustu ár. Johannesen segir að verkefnið hafi verið að vinna að því að ná saman um texta sem sem flestir geti fylkt sér á bakvið. „Það er ekkert launungamál að stjórnmálaflokkarnir eru með ólíkar skoðanir á ákveðnum þáttum stjórnarskrárdraganna. Það hefur haft áhrif á ferlið til þessa,“ segir lögmaðurinn. Landsstjórnin hafði upphaflega ætlar sér að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna fyrir árslok 2017. Drög að texta verða lögð fyrir þingið þegar það kemur saman þann 29. júlí næstkomandi. Endanleg drög verða svo að liggja fyrir sex mánuðum áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram. „Færeyska stjórnarskráin mun skilgreina einkenni okkar sem þjóðar og grundvallarréttindi okkar og skyldur, þar á meðal rétt okkar til sjálfsákvörðunar. Þetta verður jafnframt vörn okkar gegn misnotkun valds. Þetta kemur skýrt fram í þeirri kröfu að færeyska þjóðin verður að verða spurð álits í þjóðaratkvæðagreiðslum, um spursmál er varða frekara sjálfstæði frá eða nánari samruna við Danmörk. Hið sama á við um mögulega aðild að yfirþjóðlegum stofnunum, svo sem Evrópusambandinu. Færeyska stjórnarskráin mun flytja endanlegt ákvörðunarvald frá þinginu og til þjóðarinnar þegar kemur að grundvallarmálum. Þetta verður mikill sigur fyrir færeysku þjóðina og lýðræðið í Færeyjum,“ segir Johannesen.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Sjá meira