ESB óttast að ríkisborgarar sínir í Bretlandi lendi í vandræðum eftir Brexit Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. febrúar 2017 22:24 Útgönguferlið á að taka tvö ár en margir efast um að sá tímarammi haldi. Vísir/Getty
Evrópusambandið óttast að milljónir ríkisborgara þess í Bretlandi muni lenda í vandræðum þegar landið yfirgefur sambandið vegna þess hve veikburða breskt innflytjendakerfi er. Óttast er að lagaleg staða evrópskra ríkisborgara í landinu verði óljós. Guardian greinir frá.Breskar stofnanir halda ekki utan um mannfjöldatölur og hafa því ekki á skrá, alla þá sem búa í Bretlandi og telja evrópskir ráðamenn að þetta geti orðið til vandræða þegar ríkið yfirgefur sambandið, þar sem erfitt verður fyrir bresk stjórnvöld að ákvarða hvaða evrópskir ríkisborgarar voru í landinu með löglegum hætti og hverjir voru það ekki. Þá óttast menn að álagið verði gífurlegt fyrir breskar stofnanir þegar kemur til þess að þær 3,3 milljónir Evrópubúa sem búa í Bretlandi munu þurfa að sækja um vegabréfsáritanir til þess að geta búið áfram í landinu eftir útgönguna. Mikil óvissa ríkir um það hvernig tekið verður á þessum málum og segja bresk yfirvöld að verið sé að vinna að lausnum á málinu. Ríkisstjórn Tony Blair hafði á stefnuskrá sinni árið 2007 að innleiða bresk auðkenniskort fyrir breska ríkisborgara sem og mannfjöldaskrá en sú stefna varð að engu vegna þess að breskur almenningur óttaðist mjög öryggi þeirra upplýsinga sem yfirvöld ætluðu sér að safna um almenning. Fjöldi ríkisborgara ESB sem sótt hafa um landvistarleyfi í Bretlandi hefur aukist um 50 prósent frá því að kosið var um Brexit, í júní síðastliðnum.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Sjá meira