Mannlegi þátturinn áberandi í þetta sinn Stefán Þór Hjartarson skrifar 8. mars 2017 11:45 Vök á marga aðdáendur í Póllandi. Mynd/Sigga Ella „
Við reyndum að skapa lífrænt umhverfi í kringum þessa plötu. Við reyndum svolítið að taka hana út úr kassanum sem er tölvan. Við spiluðum miklu meira inn á plötuna en við höfum gert áður. Rafið er enn þá til staðar en við skulum segja að það sé meiri mannlegur þáttur í henni en áður – við vorum ekki smeyk við það að hafa svona „human feel“ á plötunni,“ segir Einar Stef., trommuleikari í hljómsveitinni Vök. Núna er ákveðin gósentíð hjá hljómsveitinni en hún gefur út nýja plötu í næsta mánuði, hefur skrifað undir stóran útgáfusamning við erlent plötufyrirtæki og heldur von bráðar í fjögurra vikna tónleikaferðalag. Platan kemur út þann 28. apríl næstkomandi og eins og Einar segir okkur er verið að gera út á mannlega þáttinn og hvernið hið mannlega blandast tækninni. „Við ákváðum að nefna plötuna Figure eftir einu lagi á henni sem við náðum að tengjast mikið yfir, okkur fannst það rosalega mikið við hæfi fyrir þessa plötu. Fígúra getur þýtt svo margt, við vorum svolítið að vinna með það konsept; þú getur verið fígúra þó að þú sért ekki lifandi manneskja, gínur geta verið fígúrur eins og manneskjan. Það sama á við tónlistina, hún er oft samin rosa mikið í tölvu og við notum tæknina mjög mikið. Við erum að vinna með þetta „fusion“ af hinu mannlega og tæknilega þættinum sem rafband, en við erum oft skilgreind þannig.“Hvernig gengu upptökur hjá ykkur? „Upptökuferillinn byrjaði síðasta sumar. Við vorum í miklum pælingum fyrst hvort við ætluðum að gera allt sjálf eða hvort við ætluðum að fá einhvern pródúsent í þetta. Okkur fannst lógískt að fá inn pródúser sem gæti aðstoðað okkur við að fá heildarmynd á plötuna. Þannig að við komumst í tengsl við Brett Cox, breskan pródúsent. Hann kom og heimsótti okkur í júlí og tók nokkra daga með okkur. Við byrjuðum að vinna að Show Me, fyrstu smáskífunni, með honum. Okkur leist mjög vel á hann og langaði að vinna meira með honum svo við negldum að taka haustið saman. Við kláruðum Show Me í september og gerðum loka-sessionið í stúdíói á báti í London. Hann Andri saxófónleikari er svo sjóveikur – það kom flóð tvisvar á dag og þá fór báturinn á hreyfingu, þá var hann alltaf bara „off“, þurfti eiginlega bara að fara að fá sér kaffi. Við kláruðum Show me þar, sendum það beint í masteringu og tókum svo Brett með okkur heim. Og þá byrjaði þetta alvöru „hardcore“ ferli. Við vorum mest í stúdíóinu mínu og tókum þriggja vikna session í september. Við kíktum eina helgi í Gróðurhúsið í Breiðholti og fengum aðeins að bardúsa þar. Þetta kom svona hægt og rólega – við flökkuðum svolítið á milli laga en á endanum varð þetta heild, þetta small allt á einum tímapunkti.“Og það var útgáfusamningur að koma í hús, hvernig líst ykkur á það? „Jú, við vorum að gera samning við útgáfufyrirtæki sem heitir Nettwerk sem gefur út slatta af þekktum artistum. Okkur lýst bara voðalega vel á þetta, þau eru með opinn huga gagnvart því sem við erum að gera. Það vill stundum vera með svona fyrirtæki að þau vilja hafa mikið kreatívt innpútt hjá hljómsveitum. En þau virðast fíla okkur mikið.“Er einhver túr fram undan? „Við erum að fara að túra í apríl og maí, fjögurra vikna túr. Við höfum verið að herja svolítið á þessa staði og við erum sérstaklega spennt fyrir Hollandi og Póllandi. Sérstaklega Póllandi. Þar hefur verið besta mætingin á tónleikana okkar og Pólverjar eru sjálfir svo ofboðslega almennilegir og glaðir. Þeir eru rosa hrifnir af Íslandi, Íslendingum og íslenskri tónlist – það er einhver tenging þarna, náttúrulega margir Pólverjar sem búa og starfa á Íslandi. Það er svolítið magnað að koma þangað.“ Vök ætlar að halda útgáfutónleika hér á landi eftir Evróputúrinn en nákvæm dagsetning er ekki komin á hreint. Figure kemur svo út 28. apríl. Myndbandið við Show Me má finna á YouTube.
Mest lesið Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira