Ný greiningardeild minnkar álagið á bráðamóttöku Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 6. júní 2017 17:00 Sjúklingar munu aðeins dvelja á deildinni í 48 klukkustundir og eftir það verða þeir annað hvort útskrifaðir eða sendir á aðra deild, að þeim tíma loknum. Vísir/Ernir „
Álagið hefur minnkað til muna. Auðvitað er þetta mismunandi og breytist yfir sólarhringinn en þetta hefur litið mun betur út núna heldur en það hefur gert,“ segir Sigríður Þórdís Valtýsdóttir, yfirlæknir almennra lyflækninga um nýja greiningardeild sem opnaði á Landspítalanum fyrsta júní síðastliðinn. Starfsfólk deildarinnar vinnur eftir nýju verklagi að breskri fyrirmynd. Deildin ber heitið bráðalyflækningadeild og sinnir stærsta hluta þeirra sjúklinga sem leggjast inn á spítalann eða öllum sjúklingum sem meðhöndlaðir eru með lyfjum og tilheyra ekki skurðssviði eða kvensjúkdómalækningum. „Þeir koma frá bráðamóttöku til okkar og einnig frá göngudeildum lyflækningasviðs og eru metnir af þverfaglegu teymi og það er hafin meðferð strax,“ segir Sigríður og nefnir að stærsti hlut þessara sjúklinga séu aldraðir.Flýta ferlinu Markmiðið er að flýta greiningarferlinu og auka öryggi sjúklinga. Meðferð verður því hafin sem allra fyrst. Sjúklingar munu aðeins dvelja á deildinni í 48 klukkustundir og eftir það verða þeir annað hvort útskrifaðir eða sendir á aðra deild, að þeim tíma loknum. Heilbrigðiskerfið hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og hefur plássleysi meðal annars verið eitt af því sem bæði starfsfólk og sjúklingar hafa gagnrýnt. „Við höfum haft svo marga sem bíða innlagnar; fá ekki pláss á legudeildum sem tilheyra lyflækningasviði og bráðamóttökunni. Svo þetta hefur verið brýn þörf að opna svona deild.“Miklar breytingar Samkvæmt Sigríði hefur opnun þessarar nýju deildar strax breytt miklu. Gegnumflæði hafi verið mikið og létt hafi verið á álagi bráðamóttökunnar. Deildin breyti einnig miklu fyrir unga lyflækna í sérnámi þar sem þeir komist fyrr í návígi við sjúklinga.Sjá einnig: Lækna- Tómas gagnrýnir stjórnvöld„ Stefnt er að því að ráða fleira fólk inn á deildina og hefur það gengið ágætlega samkvæmt Sigríði. Hún segir jafnframt að þau voni að deildin eigi eftir að hafa jákvæð áhrif á starfsemina og nefnir að aðrar breytingar séu í farvatninu til að auka skilvirkni.Myndband frá Landspítalanum vegna nýju deildarinnar má sjá hér að neðan:
Heilbrigðismál Tengdar fréttir Geðsjúkir þurfa að bíða eftir úrræðum inni á spítala í tvö ár Skortur á búsetuúrræðum þýðir að fólk bíður allt upp í tvö ár eftir því að komast út af geðsviði Landspítalans. Aðrir fá ekki inni vegna þessa og útilokað að vinna á biðlistum. 29. maí 2017 09:00 Sjúklingar fá ekki lyf sem læknar vilja ávísa Fé til upptöku nýrra lyfja er af svo skornum skammti að ný krabbameinslyf eru ekki tekin í notkun hér á landi. Krabbameinslæknir segir þolinmæði á þrotum. Ríkisstjórnin lofaði að tryggja fjármagn til lyfjakaupa um miðjan febrúar. 27. apríl 2017 07:00 Heilbrigðisráðherra skoðar breytingar á lögum um leyfi til heilbrigðisþjónustu Hann ítrekaði á Alþingi í dag að ekki stæði til af hans hálfu að auka á einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. 26. apríl 2017 19:30 Gott mál að spítalinn fái stjórn Landlæknir segist hafa góða reynslu af því að reka sjúkrahús sem hafi stjórn yfir sér. Hann telur hugmyndina vera til bóta fyrir Landspítalann. Stjórnarandstæðingar á Alþingi óttast pólitísk afskipti af stjórn spítalans. 27. maí 2017 07:00 Sagði andúð vinstri manna á einkarekstri í heilbrigðisþjónustu "furðulega skammsýni og pólitískt trúarofstæki“ Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ræddi meðal annars komu verslunarrisanna Costco og H&M hingað til lands í ræðu sinni á eldhúsdegi á Alþingi í kvöld. Hann sagði landsmenn nú horfa á ákveðna umbyltingu hér í verslun og sagði forpokuð sjónarmið koma frá þeim sem gagnrýndu komu þessara verslana. 29. maí 2017 20:13 Heilbrigðisráðherra gagnrýndur: „Ég hlustaði á hann á Aldrei fór ég suður og hann var ágætur þar“ Fjölmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu störf heilbrigðisráðherra og þá sérstaklega málefni Klíníkurinnar í Ármúla. 24. apríl 2017 17:51 Forstjóri Landspítalans áhyggjufullur vegna næsta árs Hefur áhyggjur af rekstrinum annars vegar og hjúkrunarfræðingaskorti hins vegar. 7. apríl 2017 23:03 Siglum inn í mikinn skort á geðlæknum Mun færri læknar sækja sér nú sérfræðimenntun í geðlækningum en undanfarin ár. Geðlæknar eru margir hættir að taka við nýjum sjúklingum. 27. apríl 2017 07:00 Ekki hægt að kenna læknum í hlutastarfi um vanda Landspítalans að mati lækna Formenn læknafélaga og læknaráð Landspítalans bregðast harðlega við fullyrðingum landlæknis. 10. maí 2017 19:20 Fleiri hafa fengið vitlausa lyfjaskammta Landlæknisembættið vill meira öryggi í lyfjaávísunum til barna og koma upp viðvörunum í rafrænni sjúkraskrá. Að minnsta kosti fjögur atvik hafa verið tilkynnt til embættisins síðustu ár þar sem röngum skammti var ávísað. 20. maí 2017 06:00 Mest lesið Bátar brenna í Bolungarvík Innlent Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Innlent Meðvitundarlaus maður sóttur í Silfru Innlent Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Innlent „Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Innlent Segir Guðlaug fara með rangt mál: „Hvimleið þessi valkvæða hlustun stjórnarandstöðunnar“ Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni Innlent Segir áhyggjuefni að ESB hafi platað Íslendinga í tíu ár Innlent Rok og rigning sama hvert er litið Veður Fleiri fréttir Tvítugur Akureyringur með rafskutluleigu fyrir ferðamenn Þekktum Íslendingum lögð orð í munn með gervigreind Fulltrúar minnihlutans á einu um að tollarnir hafi ekki verið ræddir Gervigreind leggur Íslendingum orð í munn, bátabruni og veðrið um versló Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni Segir áhyggjuefni að ESB hafi platað Íslendinga í tíu ár „Ökum slóðann” – Átaksverkefni gegn utanvegaakstri Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Meðvitundarlaus maður sóttur í Silfru Segir Guðlaug fara með rangt mál: „Hvimleið þessi valkvæða hlustun stjórnarandstöðunnar“ Bátar brenna í Bolungarvík Utanríkisráðherra segir stjórnarandstöðuna fara rangt með mál „Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Tekist á um Evrópumálin Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Virknin minnkað þó áfram gjósi Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Sjá meira
Geðsjúkir þurfa að bíða eftir úrræðum inni á spítala í tvö ár Skortur á búsetuúrræðum þýðir að fólk bíður allt upp í tvö ár eftir því að komast út af geðsviði Landspítalans. Aðrir fá ekki inni vegna þessa og útilokað að vinna á biðlistum. 29. maí 2017 09:00
Sjúklingar fá ekki lyf sem læknar vilja ávísa Fé til upptöku nýrra lyfja er af svo skornum skammti að ný krabbameinslyf eru ekki tekin í notkun hér á landi. Krabbameinslæknir segir þolinmæði á þrotum. Ríkisstjórnin lofaði að tryggja fjármagn til lyfjakaupa um miðjan febrúar. 27. apríl 2017 07:00
Heilbrigðisráðherra skoðar breytingar á lögum um leyfi til heilbrigðisþjónustu Hann ítrekaði á Alþingi í dag að ekki stæði til af hans hálfu að auka á einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. 26. apríl 2017 19:30
Gott mál að spítalinn fái stjórn Landlæknir segist hafa góða reynslu af því að reka sjúkrahús sem hafi stjórn yfir sér. Hann telur hugmyndina vera til bóta fyrir Landspítalann. Stjórnarandstæðingar á Alþingi óttast pólitísk afskipti af stjórn spítalans. 27. maí 2017 07:00
Sagði andúð vinstri manna á einkarekstri í heilbrigðisþjónustu "furðulega skammsýni og pólitískt trúarofstæki“ Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ræddi meðal annars komu verslunarrisanna Costco og H&M hingað til lands í ræðu sinni á eldhúsdegi á Alþingi í kvöld. Hann sagði landsmenn nú horfa á ákveðna umbyltingu hér í verslun og sagði forpokuð sjónarmið koma frá þeim sem gagnrýndu komu þessara verslana. 29. maí 2017 20:13
Heilbrigðisráðherra gagnrýndur: „Ég hlustaði á hann á Aldrei fór ég suður og hann var ágætur þar“ Fjölmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu störf heilbrigðisráðherra og þá sérstaklega málefni Klíníkurinnar í Ármúla. 24. apríl 2017 17:51
Forstjóri Landspítalans áhyggjufullur vegna næsta árs Hefur áhyggjur af rekstrinum annars vegar og hjúkrunarfræðingaskorti hins vegar. 7. apríl 2017 23:03
Siglum inn í mikinn skort á geðlæknum Mun færri læknar sækja sér nú sérfræðimenntun í geðlækningum en undanfarin ár. Geðlæknar eru margir hættir að taka við nýjum sjúklingum. 27. apríl 2017 07:00
Ekki hægt að kenna læknum í hlutastarfi um vanda Landspítalans að mati lækna Formenn læknafélaga og læknaráð Landspítalans bregðast harðlega við fullyrðingum landlæknis. 10. maí 2017 19:20
Fleiri hafa fengið vitlausa lyfjaskammta Landlæknisembættið vill meira öryggi í lyfjaávísunum til barna og koma upp viðvörunum í rafrænni sjúkraskrá. Að minnsta kosti fjögur atvik hafa verið tilkynnt til embættisins síðustu ár þar sem röngum skammti var ávísað. 20. maí 2017 06:00