Skorpin nef og nokkur sár Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 10. júní 2017 10:15 Afrekskonurnar komnar í Jöklasel á Skálafellsjökli. Tinna María Halldórsdóttir, Selma Benediktsdóttir, Elísabet Atladóttir, Elín Lóa Baldursdóttir, Októvía Edda Gunnarsdóttir, Íris Ragnarsdóttir Pedersen og Svanhvít Helga Jóhannsdóttir skála í kampavíni.
Mér líður ágætlega en við vorum þreyttar þegar við komum til byggða og með eymsli á fótunum eftir skóna, því flestar leigðum við skíði og skó hjá Evrest og því voru þeir okkur nýir.“ Þetta segir Svanhvít Helga Jóhannsdóttir nýkomin úr sex daga gönguferð langsum eftir Vatnajökli, ásamt sex öðrum konum. Allar eru þær jöklaleiðsögumenn hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Hún segir þær hafa verið heldur óheppnar með veður. „Við fengum dálítið mikla austanátt beint á móti okkur, skafrenning og lítið skyggni en einn daginn sáum við til Kverkfjalla og Skaftafellsfjalla.“ Svanhvít á heima í Svínafelli í Öræfum og var ekki þrekaðri en það eftir jökulgönguna að hún dreif sig á dráttarvél í Ingólfshöfða með ferðamenn morguninn eftir. En nú er hún rukkuð um jöklaferðasögu. „Við vorum keyrðar upp í Jökulheima 2. júní, lögðum á jökulinn upp úr hádegi og drógum farangurinn. Hæsti punktur ferðarinnar var Grímsfjall í um 1600 metrum en hækkunin er aflíðandi. Við vorum með GPS tæki og notuðum áttavitann vel. Í dimmviðri dettur maður næstum í kyrrstöðu því maður veit ekki hvað er himinn og hvað er jörð. Það er því bæði svolítið andlega erfitt og seinlegt að komast áfram en um leið og maður sér, þó ekki sé nema ský á himninum, er ekkert mál að rata beint. Þetta var því lærdómsríkt. Við stoppuðum í Grímsvötnum, skálinn var fullbókaður því Jöklarannsóknarfélagið var þar í árlegri ferð en við fengum góðar viðtökur. Okkur var sagt að skella okkur í gufubað og opna pakka sem beið okkar og í voru bjórar. Við elduðum mat og skíðuðum svo í tvo tíma áður en við tjölduðum. Að kvöldi sjötta dags komum við niður Skálafellsjökul og þar biðu okkar bílar. Við vorum einum sólarhring lengur en áformað var, því við biðum af okkur vont veður. Alvarlegustu kvillarnir voru sólbruni, skorpið nef og nokkur sár og blöðrur á fótum. Við mökuðum á okkur sólarvörn en það er ótrúlegt hvað maður getur sólbrunnið í skafrenningi og þoku.“
Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Emily in Paris-stjarna látin Lífið Fleiri fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Sjá meira