Vaknar snemma og kveikir sjaldan á sjónvarpinu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 5. maí 2017 09:30 "Mér finnst ég muni hafa rosa mikinn tíma þegar náminu sleppir,“ segir Rebekka Rán. Vísir/GVA
Rebekka Rán á hálfrar aldar afmæli í dag og hún er í miðjum prófum. „Ég ákvað á gamals aldri, fyrir fjórum árum, að fara í nám í lögfræði í Háskóla Íslands, með fullri vinnu. Er núna á fyrra ári í meistaranáminu og á svo bara ritgerðina eftir og þrjú fög. En þetta þýðir að veisluhöldum verður frestað fram í júní, bæði prófanna vegna og í von um betra veður, þótt það hljómi furðulega akkúrat núna í sól og hita (í gær). Það hefur ekki alltaf viðrað mjög vel á afmælisdaginn minn.“ Hugmyndin hjá Rebekku Rán er sú að halda alvöru garðpartí í tilefni tímamótanna. „Við höfum verið að taka garðinn í gegn og erum búin að teppaleggja hann með nýju grasi. Hækkuðum hann líka upp því hann hentaði ekki nógu vel fyrir partí með þeim halla sem var. Nú er bara eftir að snurfusa aðeins og góðar horfur á að garðurinn verði kominn í stand í júní.“ Að BA-prófinu í lögfræði loknu kveðst Rebekka Rán hafa skipt um vinnu og byrjað að starfa hjá Útlendingastofnun. Þar sé hún mjög ánægð þótt oft sé þar tekist á við flókin og þung mál. „Vinnan útheimtir mikla lögfræðilega glímu og það er hún sem mér finnst áhugaverð. Ég byrjaði í hælisteyminu og er núna í dvalarleyfisteyminu,“ upplýsir hún. En hvað um myndlistina?Rebekka Rán á þjár tíkur, tvær whippetkyni og eina labrador.Vísir/GVA„Ég er myndlistarkona og er enn að leigja stúdíó í Garðabæ, fer þangað eins oft og ég hef átt kost á, þótt það hafi verið aðeins sjaldnar en ég hefði óskað sjálf. En það breytist væntanlega því ég verð ekki í náminu í sumar, bara í vinnunni. Ég hef á þessum fjórum árum tamið mér að vakna mjög snemma á morgnana og kveiki lítið á sjónvarpinu svo að það hefur fjölgað klukkustundum í sólarhringnum. Því finnst mér ég eiga rosa mikinn tíma þegar náminu sleppir.“ Geir Þorsteinsson er maki Rebekku Ránar til sjö ára og samanlagt eiga þau tvö börn, Ellen Geirsdóttur sem er tvítug á árinu og Baltasar Darra sem er að verða 17 ára. Svo eiga þau þrjá hunda, eina tólf ára labradortík, og tvær whippettíkur, aðra þriggja mánaða og hina þriggja vikna svo það er í mörg horn að líta. En hvernig líður Rebekku Rán með aldurinn? „Það sem upp úr stendur er gríðarlegt þakklæti fyrir það sem maður hefur fengið í þessu lífi, fyrir þá foreldra sem manni auðnaðist að fæðast hjá og þótt það hljómi eins og slitin tugga þá er það sem máli skiptir að hafa góða heilsu og vera í góðu sambandi við sína nánustu.“
Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Sjá meira