Látlaust og litríkt Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 13. apríl 2017 11:00 Úlpa: Topshop í London, peysa: keypt notuð á fatamarkaði, buxur: Zara, skór: Kaupfélagið. MYND/STEFÁN
Skyrta: Gyllti kötturinn, buxur: 5 units, Gallerí 17, skór: GS skór. MYND/STEFÁN Berglind stundar nám við Menntaskólann við Sund og lýkur stúdentsprófi í vor. Hún vinnur mikið með skólanum, m.a. í fataverslun í Kringlunni og í snyrtivöruversluninni Fotia.Spáir þú mikið í tísku?„Já, svo sannarlega. Ég hef haft áhuga á tísku síðan ég byrjaði að kaupa mín eigin föt og það var þá sem peningaeyðslan byrjaði fyrir alvöru. Ég fylgist mikið með tískubloggurum alls staðar að í heiminum, en þá sérstaklega þeim skandinavísku. Ég hef alltaf haft gaman af því að gera mig fína og dressa mig upp fyrir hin ýmsu tilefni.“Hvernig myndir þú lýsa þínum stíl?„Hann er mjög fjölbreytilegur og er eiginlega mismunandi á hverjum tíma. Ég á mikið af klassískum flíkum og þá eru átfittin einföld en stílhrein. Á hinn bóginn er ég einnig mjög mikið fyrir litríkar og mynstraðar flíkur og mér finnst fátt skemmtilegra en að setja saman björt og sumarleg átfitt.“Hvar kaupir þú fötin þín?„Ég á ótalmargar uppáhaldsbúðir og á mjög erfitt með að velja aðeins nokkrar, en þær sem eru í algjöru uppáhaldi hjá mér hér á landi eru Vero Moda, Topshop og Zara. Ég hef einnig pantað mikið á netinu og þá helst frá Asos og Nasty Gal. Báðar verslanirnar senda til Íslands. Annars er ekkert skilyrði að flíkurnar sem ég kaupi séu merkjavörur. Ég á mikið af fallegum „second hand“ flíkum sem eru margar í uppáhaldi hjá mér.“Golla: H&M, bolur: Vero Moda, buxur: Cheap Monday, Weekday í Svíþjóð (fást einnig í Gallerí 17). MYND/STEFÁNEyðir þú miklu í föt?„Ef ég á að vera hreinskilin þá eyði ég líklega of miklum peningum í föt, að mati sumra að minnsta kosti. Ég á erfitt með að hemja mig þegar ég sé eitthvað sem mig virkilega langar í og oftast nær verslunareðlið yfirhöndinni. Mér til varnar er ég samt dugleg að kaupa ódýr föt, eins og í H&M, Primark eða í „second hand“ búðum, svo sem í Kolaportinu eða á fatamörkuðum.“Hver er uppáhaldsflíkin þín? „Ég á margar uppáhaldsflíkur en þær sem eru í algjöru uppáhaldi akkúrat núna eru líklega ljósbleika úlpan mín úr Topshop og Marc Jacobs taskan mín.“Hver er helsti veikleiki þinn þegar kemur að tísku og útliti? „Hversu lengi ég er að gera mig til og ákveða í hverju ég á að vera. Ég er oftast síðust út úr húsi og ég þarf að vera ánægð með átfittið áður en að ég fer út.Notar þú fylgihluti? „Ég á ótal töskur og klúta en þá fylgihluti held ég mest upp á. Ég nota ekki mikið skartgripi nema þegar ég fer eitthvað fínt eða er í stuði til þess. Hins vegar held ég mikið upp á snyrtivörur og fyrir mér er flott förðun lykillinn að flottu lúkki.“Áttu þér tískufyrirmynd? „Ég held upp á Kenzu Zouiten, tískubloggara frá Svíþjóð, og hef fylgst lengi með því sem hún er að gera. Hún hannaði fatalínu fyrir nokkrum árum sem heitir Ivyrevel og ég held mikið upp á og skoða reglulega.“
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira