Allir bráðna nærri Ragga Bjarna Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 2. janúar 2017 13:30 Það er mikið lið og harðsnúið í Stórsveit Reykjavíkur.
Gullöld sveiflunnar er yfirskrift nýárstónleika Stórsveitar Reykjavíkur sem haldnir verða í Silfurbergi, Hörpu, á miðvikudaginn og hefjast klukkan 20. „Þetta er í fjórða sinn sem sveitin heldur stórtónleika helgaða swing-tímabilinu frá 1930 til 1950,“ segir Sigurður Flosason, djasslistamaður og stjórnandi Stórsveitarinnar. Hann segir gesti sveitarinnar þetta árið vera þau Sigríði Thorlacius og Jón Jónsson, auk þess sem Ragnar Bjarnason sé fulltrúi hinnar upprunalegu íslensku sveiflu. Sigurður nefnir Benny Goodman, Charlie Barnet, Glenn Miller og Count Basie sem dæmi um lagahöfunda sem spilað verði eftir á tónleikunum og segir verða leikin mörg af þekktustu lögum merkustu stórsveita sveiflutímabilsins. „Við tökum alltaf eitthvað sem við höfum spilað áður, inn á milli, en um 80% laganna hafa ekki verið á dagskrá hjá okkur fyrr á nýárstónleikum. Þessi tónlist var popp þess tíma og þar höfum við gríðarlega stóran pott að sækja í – mikið af músík sem flutt var af ótrúlega mörgum mismunandi stórsveitum og sólóistum, stjórnendum og söngvurum.“ Áhersla verður lögð á að flytja frumgerðir laga, að því er Sigurður lýsir. „Þetta verður bara eins og að spila verk eftir Mozart eins og það var skrifað,“ segir hann. „Við erum í því alla aðra daga ársins að spila nýja músík og alls konar tilbrigði við þá eldri en á þessum tónleikum sýnum við sögunni sóma og reynum að endurskapa upprunalegar útgáfur, sem er skemmtilegt og krefjandi verkefni.“ Músíkin kemur frá Ameríku að langmestu leyti, að sögn Sigurðar. „En í ár erum við líka með örfá íslensk lög því við erum að spá í hina upprunalegu íslensku sveiflu með Ragnari Bjarna og tengjum það þema inn í tónleikana í lokin.“ Sigurður segir Bjarna Böðvarsson, föður Ragnars, hafa verið einn af frumkvöðlum sveiflunnar hér á landi. „Bjarni Bö setti saman fyrstu íslensku stórsveitina og var líka fyrsti formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna. Þó dálítið langt sé síðan þá er nú bara annar leggurinn frá honum með okkur ennþá og man vel þennan tíma, það er hann Raggi, sem er í ótrúlega fínu formi. Hann er eiginlega náttúrlegt undur að geta gert það sem hann getur, á þeim aldri sem hann er. Svo er hann með þetta yndislega viðmót. Það bráðna allir tónlistarmenn í námunda við hann, hann er svo flottur.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. janúar 2016.
Menning Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fleiri fréttir Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Sjá meira