Er orðin fræg sem leiðsögumaður í Japan Guðný Hrönn skrifar 15. júní 2017 12:30 Thelma Rún og Keisuke Ooyama sjá framtíð sína fyrir sér í Japan.
Thelma Rún Heimisdóttir hefur verið búsett í Japan í um þrjú ár en þangað kom hún fyrst árið 2014 sem skiptinemi. „Ég fór til Tókýó þegar ég var að læra japönsku við Háskóla Íslands. Eftir eitt ár í Japan útskrifaðist ég síðan með BA-gráðu í japönsku 2015,“ segir Thelma sem varð ástfangin af Japan. „Ég elskaði að vera í Japan svo ég ákvað að koma aftur til að læra leiklist í Tókýó.“ Thelma stundar leiklistarnám við Tokyo Film Center School of Arts og er fyrsti Íslendingurinn sem nemur við þann skóla. Thelma talar reiprennandi japönsku en hún segir það hafa verið krefjandi að læra hana. „Það tók sinn tíma að geta tjáð sig almennilega í daglegu tali. En um leið og ég kom til landsins þá neyddist ég til að nota tungumálið því það tala svo fáir ensku. Ég einsetti mér líka strax að ná tökum á japönsku táknunum og skrifa þau og það hefur gengið alveg ágætlega.“ Thelma er búin að koma sér vel fyrir í Japan og hefur starfað þar sem hálfgerður leiðsögumaður og er meira að segja orðin fræg í Belgíu sem slíkur. Leiðsöguævintýrið byrjaði þegar hún tók að sér að aðstoða belgíska sjónvarpsstöð í Japan.„Ég aðstoðaði við dagskrárgerð, fann efni og viðmælendur, túlkaði og sá til þess að allt gengi snurðulaust fyrir sig.“ Í kjölfarið hafði önnur belgísk sjónvarpsstöð samband við Thelmu. „Þá hafði ég sama hlutverk og áður, og að þessu sinni var ég líka sérstakur gestur þáttarins, sem er mjög vinsæll í Belgíu. Þátturinn heitir Jani Gaat Naar Tokio og gengur út á það að þáttarstjórnandinn fer til hinna ýmsu landa í leit að furðulegum og skemmtilegum hlutum. Ég kom fyrir í flestum senum þáttarins og það hafði þau áhrif að síðan hef ég fengið fjölda tilboða frá enn fleiri framleiðslufyrirtækjum og sjónvarpsstöðvum í Belgíu. Þá hafa líka belgískar ferðaskrifstofur sett sig í samband við mig og boðið mér leiðsögumannsstarf. Svo hafa einstaklingar sem horfðu á þáttinn sett sig í samband og beðið mig um einkaleiðsögutúra í Japan. Það sem er líka svolítið fyndið og kom mér gjörsamlega á óvart var að hinir og þessir Belgar höfðu uppi á mér á Facebook og hófu að senda mér „fan-skilaboð“ og sögðu mér að ég væri bara orðin fræg í Belgíu!“ Sér fram á að búa áfram í JapanThelma á japanskan kærasta sem heitir Keisuke Ooyama og hann er að klára háskólanám í stærðfræði. Hún sér fram á að vera áfram í Japan. „Við stefnum á að búa hér. Ég held að ég komi ekki til Íslands í bráð. Við sjáum framtíð okkar hér í Japan. Í Japan er yndislegt að vera, enda landið fagurt, fólkið og menningin frábær, það er allt ótrúlega hreinlegt og Japan er að mörgu leyti til fyrirmyndar fyrir önnur samfélög.“ „Japanar eru það kurteisasta, hlýjasta og hjálplegasta fólk sem ég hef kynnst og til að sýna menningu þeirra virðingu væri gott að kynna sér siði þeirra áður en maður heldur til landsins,“ segir Thelma spurð út í hvort hún lumi á góðum ráðum fyrir þá sem ætla að ferðast til Japan. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að átta sig á því að hér fer enginn fram með yfirgangi, frekju, dónaskap eða ókurteisi. Þá mæli ég með því að maður sýni alltaf tillitssemi og nærgætni því þannig eru Japanar sjálfir og þeir kunna mjög vel að meta það hjá útlendingum. Þeir eru stífir á reglum og ætlast til að farið sé eftir þeim enda gera þeir það sjálfir. Ekki hika við að biðja um aðstoð ef þú lendir í vandræðum. Japanar eru tilbúnir að ganga ansi langt til að hjálpa þér,“ útskýrir Thelma.„Það sem mér finnst langbest við Japan er öryggið sem maður finnur fyrir hér í samfélaginu.“ Thelma segir Japana vera forvitna um Ísland. „Já, fólk verður mjög spennt þegar ég segi að ég sé frá Íslandi,“ segir Thelma sem hefur nokkrum sinnum komið fram í japönsku sjónvarpi og sagt frá Íslandi og íslenskri menningu.
Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Emily in Paris-stjarna látin Lífið Fleiri fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Sjá meira