Gat ekki stælana í Pep og hætti Henry Birgir Gunnarsson skrifar 15. ágúst 2017 22:45 Pep raðaði inn titlum hjá Bayern en var víst ekki sá skemmtilegasti. vísir/getty
Fyrrum læknir FC Bayern vandar þjálfaranum Pep Guardiola ekki kveðjurnar og segir Pep vera ástæðuna fyrir því að hann hætti eftir 38 ára starf fyrir Bayern. Sá heitir Hans-Wilhelm Muller-Wohlfart og yfirgaf félagið árið 2015. Þá hætti hann ásamt öllum sínum samstarfsmönnum eftir 3-1 tap Bayern gegn Porto í Meistaradeildinni. Það vantaði marga lykilmenn Bayern í leiknum og Pep skellti skuldinni á læknateymið sem hann sagði ekki vera að vinna vinnuna sína. „Ég var ekki vanur því að það væri komið fram við mig eins og Guardiola kom fram við mig. Það hafði aldrei gerst. Hann var á móti öllu og sýndi okkar vinnu engan áhuga. Bara gagnrýndi og sagði að allt væri betra á Spáni. Þá var þetta orðið leiðinlegt,“ sagði Muller-Wohlfart. Eftir að Guardiola hafði rifist við Muller-Wohlfart þá sendi hann Thiago Alcantara í meðferð á Spáni. Treysti ekki eigin lækni. „Það var ósanngjarnt að kenna okkur um töp og að leikmenn væru ekki tilbúnir í tíma. Þar fór Pep fram úr sjálfum sér og talaði um hluti sem hann hefur ekki hundsvit á. Okkar skylda liggur gagnvart leikmanninum og hans heilsu. Ég gat ekki meira af þessu og þess vegna hætti ég.“ Þessi frægi læknir hefur haldið áfram að sinna sumum stjörnum Bayern og Usain Bolt hefur einnig nýtt sér þjónustu hans þegar hann er í Þýskalandi.
Fótbolti Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Fleiri fréttir Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjá meira