Austurríki í undanúrslit á sínu fyrsta stórmóti

Verena Aschauer í leiknum í dag.
Verena Aschauer í leiknum í dag. Vísir/Getty
Austurríki er komið í undanúrslit á Evrópumótinu í knattspyrnu kvenna eftir að hafa slegið út Spánverja í vítaspyrnukeppni í Willem í dag.

Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma, en Spánn var mun sterkari aðilinn. Þær voru meira með boltann og áttu fleiri skot, en náðu ekki að skora.

Í framlengingunni leit heldur ekkert mark dagsins ljós og því varð að grípa til vítaspyrnukeppni þar sem úrslitin réðust.

Austurríki skoraði úr öllum sínum spyrnum á meðan Silvia Meseguer klúðraði víti fyrir Spán og Austurríki þar með komið í undanúrslit þar sem liðið mætir Danmörku.

Þetta er fyrsta stórmót Austurríkis og árangurinn glæsilegur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira