Gunnar Alexander sækist eftir 3.- 4. sæti í vali Samfylkingar Atli Ísleifsson skrifar 11. ágúst 2016 22:11 Gunnar Alexander Ólafsson.
Gunnar Alexander Ólafsson sækist eftir 3.-4. sæti í stuðningsmannavali Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna komandi þingkosninga haustið 2016. Gunnar Alexander hefur starfað sem sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun frá nóvember 2015. Í tilkynningu frá Gunnari Alexander segir hann Samfylkinguna standa á tímamótum. „Hún þarf nauðsynlega á því að halda að laða til liðs við sig nýja krafta, fólk sem tilbúið er til að berjast fyrir stefnumálum, áherslum og gildum norrænna jafnaðarmanna. Ástæða þess að ég vil taka þátt í vegferðinni framundan með Samfylkingunni er sú að ég hef einlægan metnað til að berjast fyrir réttlátara, sanngjarnara og betra Íslandi sem byggi á grunnstefi jafnaðarmanna um frelsi, jafnrétti og bræðralag. Ég hef góða reynslu og menntun til að berjast fyrir stefnu Samfylkingarinnar og áratugareynslu af grasrótarstarfi með jafnaðarmönnum. Til þess að Samfylkingin nái góðum árangri í næstu kosningum til alþingis þarf flokkurinn að fá hæfilega endurnýjun í þingmannaliði sínu og nýtt fólk. Þau mál sem mér eru einkar hugleikin og ég vil leggja sérstaka áherslu á eru:HeilbrigðismálFélags- og húsnæðismálRíkisfjármál, skilvirkni og árangursríkari opinber reksturNeytendamálMenntun og nýsköpun Ég hef fjölbreytta menntun og starfsreynslu. Ég hef BA próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og er bæði með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskólanum í Gautaborg og í heilbrigðisstjórnun frá Norræna Heilsuháskólanum í Gautaborg. Árið 2009 fékk ég viðurkenningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu sem hagfræðingur. Á skólaárum mínum starfaði ég m.a. á varðskipum, við byggingavinnu, fangavörslu og öryggisvörslu á alþingi. Einnig starfaði ég um árabil við markaðsmál hjá RÚV. Eftir framhaldsnám í Svíþjóð starfaði ég um sjö ára skeið sem sérfræðingur hjá heilbrigðisráðuneytinu. Ég hef einnig starfað sem ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Háskólanum á Bifröst. Ég starfa nú sem sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun síðan nóvember 2015. Þá hef ég auk þess sinnt kennslu í framhaldsskólum og háskólum og haldið fjölda fyrirlestra um heilbrigðis-, öryggis- og varnarmál og um ferðamál. Ég er kvæntur Ingibjörgu Lilju Ómarsdóttur, verkefnisstjóra hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og eigum við þrjú börn; Heklu, Hákon og Hinrik Dag,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira