Hávaðamengun í hafinu Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 16. febrúar 2016 07:00 Azzedine Downes, formaður IFAW, og Vivek Menon, ráðgjafi IFAW, á frumsýningu Sonar Sea í Hvalasafninu á Granda. vísir/ernir „
Hávaðinn neðansjávar truflar samskipti dýranna og skaðar velferð þeirra,“ segir Azzedine Downes, forseti IFAW, alþjóðlega dýraverndunarsjóðsins, sem kom hingað til lands í byrjun febrúar til að vera viðstaddur Evrópufrumsýningu heimildarmyndarinnar Sonic Sea á Hvalasýningunni á Granda. Myndin fjallar um hávaðamengun í hafinu og áhrif hennar á sjávarspendýr. IFAW eru ein af stærstu dýravelferðarsamtökum heims með verkefni í öllum heimsálfum og hafa haldið því fram að hávaði í heimshöfunum valdi hvölum, höfrungum og öðrum sjávarspendýrum alvarlegum vandamálum. Í heimildarmyndinni Sonic Sea er fjallað um dauða hvala af völdum hljóðsjáa herskipa og áhrif hávaða frá flutningaskipum og djúpsjávarborunum á líf sjávarspendýra. Í mars árið 2000 rak mikinn fjölda hvala af nokkrum tegundum á land á Bahamaeyjum og í myndinni er dauðinn rakinn til hljóðsjáa herskipa í grennd við eyjarnar. „Hávaðinn margfaldast með tímanum og það er alls ekki gert nóg í því að vernda dýrin. Það er til betri tækni til þess að bora og stunda rannsóknir,“ segir Downes. „Fólk gerir sér ekki grein fyrir vandanum vegna þess að hann er undir yfirborði sjávar en dýrin kveljast. Við gætum aldrei þolað viðlíka hávaða. Á hverjum tíma eru um sextíu þúsund flutningaskip á ferð um höf heimsins og hávaðinn frá þeim er mikill í hafinu og þá mest frá allra stærstu skipunum. Flutningar um haf hafa aukist.“ En hávaðinn er ekki verstur vegna flutningaskipanna þótt hann trufli samskipti hvala að sögn Azzedine. „Olíufyrirtækin nota hljóðbylgjur til að leita að olíu og gasi undir sjávarbotni. Þessar hljóðbylgjur hafa afar skaðleg áhrif á hvali og fleiri sjávarspendýr. Í myndinni Sonar Sea er töluvert fjallað um aðferðir bandaríska hersins til þess að leita uppi skotmörk undir yfirborði sjávar. Herskip nota hljóðbylgjur til þess að leita uppi skotmörkin. Þessar hljóðbylgjur hafa mikil áhrif á lífríkið allt og hefur það orðið til þess að mikinn fjölda hvala og sjávarspendýra hefur rekið á land, við Kanaríeyjar, í Karíbahafi og allt til Japans.“ Azzedine segir boranir við Grænland helst hafa áhrif á velferð hvala í nágrenni við Ísland en segir mikilvægt að gæta að truflunum vegna hvalaskoðunarferða. „Þetta er orðin mikil traffík sem þarf að fylgjast með. Ég hef aldrei skilið af hverju fólki er síðan boðið að smakka hval í lok sumra slíkra ferða. Það er með ólíkindum.“
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira